Orri með flest afkvæmi-
Orri frá Þúfu á flest afkvæmi sem komið hafa fyrir kynbótadóm það sem af er árinu. Afkvæmin eru 56 talsins og meðaltal hæfileikaeinkunnar þeirra afkvæma er 7,94. Hæst virðist Orri gefa fyrir tölt, ef marka má einkunnir þessara 56 afkvæma, en meðaltal tölteinkunna er 8,46.
Næst flestu afkvæmin sem komið hafa fyrir dóm á árinu er Álfasteinn frá Selfossi, 41 talsins, og er meðaltal hæfileikaeinkunna þeirra 7,93. Álfasteinn virðist gefa hæst fyrir vilja og fegurð í reið, en meðaltal einkunna fyrir vilja var 8,28 og meðaltal einkunna fyrir fegurð í reið var 8,20. Þá á Aron frá Strandarhöfði 36 afkvæmi sem komið hafa fyrir dóm á árinu, meðaltal hæfileikaeinkunna þeirra er 8,01.
Meðfylgjandi listi sýnir nöfn þeirra stóðhesta sem eiga flest afkvæmi sem komið hafa fyrir dóm á árinu og meðaltal hæfileikaeinkunna í þeim dómum. Aðeins er talið úr hrossum sem dæmd voru fyrir bæði hæfileika og sköpulag.
1. Orri frá Þúfu – 56 afkvæmi – 7,94
2. Álfasteinn frá Selfossi – 41 afkvæmi – 7,93
3. Aron frá Strandarhöfði – 36 afkvæmi – 8,01
4. Sær frá Bakkakoti – 32 afkvæmi – 8,00
5. Þóroddur frá Þóroddsstöðum – 31 afkvæmi – 7,92
6. Rökkvi frá Hárlaugsstöðum – 31 afkvæmi – 7,86
7. Gustur frá Hóli – 29 afkvæmi – 7,96
8. Adam frá Ásmundarstöðum– 29 afkvæmi – 7,81
9. Hróður frá Refsstöðum – 27 afkvæmi – 7,89
10. Hágangur frá Narfastöðum – 27 afkvæmi – 7,82
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH