Óskað eftir atriðum á Vesturlandssýninguna

  • 25. febrúar 2015
  • Fréttir
Vestlenskir gæðingar og hestamenn koma fram á Faxaborg.

Fulltrúar hestamannafélaga á Vesturlandi og Hrossaræktarsambandi Vesturlands hafa ákveðið að efna til Vesturlandssýningar í reiðhöllinni Faxaborg Borgarnesi, laugardaginn 28. mars næstkomandi samkvæmt tilkynningu frá undirbúningsnefnd sýningarinnar.

„Þetta er fimmta árið í röð sem Vesturlandssýningin er haldin í Faxaborg og mun allt kapp verða lagt á að sýningin í ár verði sem glæsilegust. Á sýningunni munu koma fram vestlenskir gæðingar og dæmi um sýningaratriði eru sýningar hjá börnum, unglingum, ungmennum ásamt fimmgangs og fjórgangshestum, skeiði, tölti, kynbótahrossum og ræktunarbúum ásamt mörgum fleiri atriðum með góðum gestum. Dagskrá verður auglýst þegar nær dregur. 

Þeir sem hafa ábendingar um atriði eða hross, sem eiga erindi á sýninguna geta komið þeim á framfæri við:

Sérstakir tengiliðir fyrir atriði  barna, unglinga og ungmenna eru:
Almennt: Ámundi Sigurðsson, [email protected], gsm: 892-5678
Siguroddur Pétursson, [email protected], gsm: 897-9392

Tengiliðir kynbótahrossa og ræktunarbúa:
Benedikt Þór Kristjánsson, [email protected], gsm: 896-1581
Hlöðver Hlöðversson, [email protected], gsm: 661-7308

Tengiliður barna:Heiða Dís Fjeldsted, [email protected], gsm: 862-8932
Tengiliður unglinga:Linda Rún Pétursdóttir, [email protected], gsm: 892-4050
Tengiliður ungmenna: Siguroddur Pétursson, [email protected], gsm: 897-9392  

Þeir aðilar sem hafa áhuga á að vera með ræktunarbúsýningu setjið ykkur í samband fyrir 5. mars.“

 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link