Óskað eftir tilnefningum til reiðkennara ársins 2023
Skilyrðin fyrir tilnefningunni eru:
- Verður að vera skráður í hestamannafélag á Íslandi.
- Verður að vera innan Feif Matrixunnar level 1, 2, 3 eða 4 (sjá HÉR)
- Verður að vera starfandi reiðkennari.
Dæmi um reiðkennara sem geta hlotið tilnefningar:
- Reiðkennari sem hefur sýnt fram á miklar framfarir hjá nemendum á hvaða stigi eða sviði sem er.
- Reiðkennari sem er með frumkvöðlahugsun, gert eitthvað nýtt eða öðruvísi t.d. nýstárlega nálgun í almennri kennslu eða rafkennslu.
- Reiðkennari sem gerir frábæra hluti með börnum, fötluðum eða keppnisknöpum.
- Reiðkennari sem stuðlar sérstaklega að nýliðun í hestamennsku.
- Reiðkennari sem stuðlar sérstaklega að velferð hesta.
Tilnefningunni skal fylgja ástæða fyrir því að þér finnst viðkomandi eiga skilið titilinn “Reiðkennari ársins” – Ekki má tilnefna nátengda aðila þ.e.a.s. fjölskyldumeðlimi, maka, börn o.s.frv.
Það er menntanefnd LH sem velur úr tilnefningum og setur út netkosningu á vefsíðu LH. Sá reiðkennari sem fær flest atkvæði í netkosningu innanlands er svo fulltrúi Íslands í alþjóðlegri netkosningu Menntanefndar FEIF sem setur atkvæðagreiðslu í gang. Sá eða sú sem vinnur atkvæðagreiðslu FEIF hlýtur titilinn, “Reiðkennari ársins 2023”.
Tilnefningar þurfa að berast í síðasta lagi 30. október. Vinsamlegast sendið tilnefningarnar á [email protected]
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Skráning opin á Metamót Spretts