Ösp hlýtur Glettubikarinn

  • 28. nóvember 2021
  • Fréttir

Ösp frá Hólum. Knapi Mette Mannseth. Mynd: Eiríkur Jónsson

Átta hryssur hljóta heiðursverðlaun í ár

Þær hryssur sem hljóta heiðursverðlaun í ár fyrir afkvæmi eru átta talsins. Til þess að hryssa hljóti heiðursverðlaun þarf hún að uppfylla eftirfarandi skilyrði.

  • 116 stig í kynbótamati fyrir aðaleinkunn eða aðaleinkunn án skeiðs og a.m.k. 5 dæmd afkvæmi

Efst heiðursverðlaunahryssna í ár og því Glettubikarhafi er Ösp frá Hólum sem er með 125 stig í aðaleinkunn kynbótamatsins og á sex dæmd afkvæmi. Ösp er undan Þokkabót frá Hólum og Markúsi frá Langholtsparti. Meðaleinkunn afkvæma hennar er 8,34 í aðaleinkunn. Ösp er einnig efst heiðursverðlaunahryssna fyrir kynbótamat án skeiðs en þar er hún með 125 stig.

Framtíð frá Ketilsstöðum er efst þeirra sem kemur inn í heiðursverðlaunin í gegnum aðaleinkunn án skeiðs en þar er hún með 123 stig.

Elsta hryssan á listanum er Nótt frá Oddsstöðum I sem er fædd árið 1997 og er því 24.vetra gömul í ár. Yngsta hryssan er hins vegar Rán frá Þorkelshóli 2 sem fædd er árið 2005 og er því 16 vetra gömul.

Hér fyrir neðan er listi yfir allar þær hryssur sem hljóta heiðursverðlaun í ár raðað eftir aðaleinkunn kynbótamatsins.

Nafn Uppruni   Ae.   Ae. án skeið Fjöldi afkvæma
Ösp Hólum

125

125

6

Nótt Oddsstöðum I

120

115

6

Sefja Úlfljótsvatni

119

112

6

Sunna Rós Úlfljótsvatni

117

118

5

Hrísla Sauðárkróki

116

111

5

Rán Þorkelshóli 2

114

121

5

Framtíð Ketilsstöðum

114

123

5

Sædís Stóra-Sandfelli 2

111

117

5

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link