Páll og Vísir báru sigur úr býtum
Páll Bragi Hólmarsson og Vísir frá Kagaðarhóli sigurvegari í tölti Myndir: Gunnhildur Ýrr
Páll Bragi Hólmarsson og Vísir frá Kagðarhóli unnu töltið í 1. deildinni nokkuð örugglega. Þeir voru efstir eftir forkeppni með 7,73 og unnu A úrslitin með 8,22 í einkunn. Þetta er annar sigurinn þeirra í 1. deildinni í vetur en þeir unnu einnig slaktaumatöltið.
Thelma Dögg Tómasdóttir og Bóel frá Húsavík urðu í öðru sæti með 7,33 í einkunn og í því þriðja varð Hermann Arason á Náttrúnu Ýr frá Herríðarhóli með 7,28 í einkunn.
Það var lið Sportfáka sem vann liðaplatta kvöldsins en knapar fyrir liðið voru Páll Bragi, Katla Sif Snorradóttir á Sæmari frá Herríðarhóli (4. sæti) og Anna Björk Ólafsdóttir á Spennu frá Bæ (10. sæti).
Katla Sif er enn efst í einstaklingskeppninni með 30,5 stig en rétt á hæla hennar er Páll Bragi með 29 stig. Hlynur Guðmundsson er kominn í þriðja sæti með 23 stig.
Nánari staða í einstaklings- og liðakeppninni verður birt á morgun en næsta mót í 1. deildinni verður skeiðmót deildarinnar en þá verður keppt í 100m. skeiði og gæðingaskeiði. Það er einnig lokamót deildarinnar og verður dregið í afmælisleik Ástundar og EiðfaxaTV.
Hér fyrir neðan eru niðurstöðurnar í töltinu.
Niðurstöður úr töltinu
A úrslit
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Páll Bragi Hólmarsson Vísir frá Kagaðarhóli 8,22
2 Thelma Dögg Tómasdóttir Bóel frá Húsavík 7,33
3 Hermann Arason Náttrún Ýr frá Herríðarhóli 7,28
4 Katla Sif Snorradóttir Sæmar frá Stafholti 7,22
5 Hlynur Guðmundsson Neisti frá Ytri-Skógum 7,17
6 Siguroddur Pétursson Sól frá Söðulsholti 7,06
Forkeppni
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Páll Bragi Hólmarsson Vísir frá Kagaðarhóli 7,73
2 Thelma Dögg Tómasdóttir Bóel frá Húsavík 7,23
3 Siguroddur Pétursson Sól frá Söðulsholti 7,20
4 Hlynur Guðmundsson Neisti frá Ytri-Skógum 7,07
5 Hermann Arason Náttrún Ýr frá Herríðarhóli 7,00
6 Katla Sif Snorradóttir Sæmar frá Stafholti 6,93
7-8 Benedikt Ólafsson Rökkvi frá Ólafshaga 6,87
7-8 Vilborg Smáradóttir Ræðu-Jarl frá Brúnastöðum 2 6,87
9 Birna Olivia Ödqvist Tál frá Hámörk 6,83
10-11 Anna Björk Ólafsdóttir Spenna frá Bæ 6,80
10-11 Ólöf Rún Guðmundsdóttir Hringhenda frá Geirlandi 6,80
12-13 Lea Schell Húni frá Efra-Hvoli 6,77
12-13 Fredrica Fagerlund Stormur frá Yztafelli 6,77
14 Katrín Sigurðardóttir Ólína frá Skeiðvöllum 6,63
15 Þórdís Inga Pálsdóttir Móses frá Flugumýri II 6,57
16 Helgi Þór Guðjónsson Þröstur frá Kolsholti 2 6,53
17 Anna S. Valdemarsdóttir Þokki frá Egilsá 6,43
18 Reynir Örn Pálmason Agnar frá Margrétarhofi 6,30
19 Sunna Sigríður Guðmundsdóttir Jökull frá Þingbrekku 6,27
20 Eysteinn Tjörvi K. Kristinsson Fortíð frá Ketilsstöðum 6,13
21-22 Hafþór Hreiðar Birgisson Löngun frá Dýrfinnustöðum 5,93
21-22 Henna Johanna Sirén Öfgi frá Káratanga 5,93
23 Jóhann Kristinn Ragnarsson Eiðfaxi frá Lækjarbotnum 5,87
24 Haukur Tryggvason Hrafnkatla frá Hvoli 5,73
Páll og Vísir báru sigur úr býtum
Ný stjórn deildar hrossabænda innan BÍ
Stefnir í skemmtilega Stóðhestaveislu!
„Sigur í barnaflokki var ógleymanleg stund fyrir mig“
Þórunn bar sigur úr býtum
Agnar og Kvistur á nýju hallarmeti