Páskamót Geysis
Páskamót Hestamannafélagsins Geysis verður haldið á skírdag að er fram kemur í tilkynningu frá félaginu:
„Þrígangsmót verður haldið í Reiðhöllinni á Gaddstaðaflötum á skírdag, fimmtudaginn 5 apríl og hefst kl. 20.
Tölt frjáls hraði, brokk milliferð og stökk hægt til milliferð. Skráning hefst kl. 19.00. Skráningargjald er 2000,- kr. nema börn og unglingar 1000,- kr.
Keppt verður í eftir töldum flokkum. Barnafl. Unglingafl. Ungmennafl. Áhugamannafl. og Opnumfl.“
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH