Peter DeCosemo kemur aftur til landsins
Úrvalshestar og Hestheimar kynna sýnikennslu í hæsta gæðaflokki:
Sýnikennsla með Peter DeCosemo í reiðhöllinni í Hestheimum, sunnudaginn 15. apríl klukkan 14:00
Allir velkomnir og aðgangseyrir aðeins 1.000 krónur. Athugið að ekki er posi á staðnum.
Peter er breskur þjálfari og reiðkennari og státar af glæstum ferli sem slíkur. Hann hefur hlotið fjöldann allan af viðurkenningum og sætum sigrum á ferlinum. Líklega bar það þó hæst þegar hann var útnefndur Illinois Horse Person of the Year, í Illiois fylki í Bandaríkjunum árið 1991, og bar þar með sigurorð af öllum öðrum hestamönnum úr öllum hestaíþróttagreinum það árið. Peter er með hin eftirsóttu reiðkennararéttindi, British Society Instructors Certificate, og starfaði í níu ár sem yfirdómari hjá sama félagi við inntökupróf nýrra félaga.
Þess má geta að Peter er hönnuður hinna vinsælu Ansur hnakka, sem m.a. Mette Manseth, Artemisia Bertus o.fl. nota mikið við þjálfun og sýningar.
Peter ætlar m.a. að sýna okkur hvernig hann vinnur með hest í hringtaum og notar brokkspírur og cavaletti til að þjálfa og styrkja gangtegundir hestsins.
Frábær viðburður sem enginn hestamaður má láta framhjá sér fara. Peter hefur áður haldið sýnikennslu á Íslandi og þá fyrir fullu húsi. Þetta er einstakt tækifæri til að sjá heimsklassa þjálfara vinna með hross. Umræður í lokin.
Allar nánari upplýsingar fást hjá [email protected] og á
www.urvalshestar.is og www.hestheimar.is
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH