Pollaflokkur á Gæðingamóti og framlengdur skráningarfrestur
Ákveðið hefur verið að framlengja skráningarfrest á Opið Gæðingamót Geysis til þriðjudagskvölds 6. júni kl. 23:59. Pollaflokk hefur verið bætt við og fer skráning í hann fram í gegnum www.sportfeng.com.
Ef einhverjir þurfa aðstoð við skráningar þá er hægt að hafa samband á netfanginu [email protected] .
Boðið verður uppá eftirfarandi flokka:
- A flokkur (gæðingaflokkur 1 og 2)
- B flokkur (gæðingaflokkur 1 og 2)
- A flokkur Ungmenna
- B flokkur Ungmenna
- Unglingaflokkur
- Barnaflokkur
- Gæðingatölt Fullorðins-, ungmenna-, unglinga- og barnaflokkur)
- 250m skeið
- 150m skeið
- 100m skeið
- Pollagæðingakeppni
Skráningargjöld eru eftirfarandi:
- 7.500 kr í Fullorðins og ungmennaflokka.
- 5.000 kr í Unglinga- og barnaflokk sem og skeiðgreinar.
- 0 kr í Pollagæðingakeppni
Nokkur atriði sem keppendur skulu hafa í huga:
- Nái skráningar ekki viðunandi fjölda fellur flokkur niður eða verður sameinaður öðrum eftir atvikum.
- Keppendur eru ábyrgir fyrir skráningu sinni.
Við hlökkum til að taka á móti ykkur á Rangárbökkum!
Mótsnefnd Gæðingamóts Geysis 2023
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Skráning opin á Metamót Spretts