Púlsinn 2019
Hrossaræktarsamtök Suðurlands (HS) býður alla velkomna á Púlsinn 2019, sem haldinn verður í Ölfushöllinni laugardaginn 23.febrúar klukkan 11:00.
Púlsinn 2019 er fagsýning þeirra sem stunda hestamennsku með einum eða öðrum hætti. Á Púlsinn mæta fulltrúar atvinnufólks í ræktun, þjálfun og sýningum hrossa og hestatengdrar ferðaþjónustu og kynna sitt starf með sýnikennslu og almennu spjalli.
Margir landsþekktir knapar og hestar munu koma fram á Púlsinum og má þar nefna til dæmis Gísla Gíslason með Trymbil frá Stóru-Ási sem hlotið hefur 9,01 fyrir hæfileika þar af 10,0 fyrir skeið.
Þór frá Torfunesi sem var efstur í 5 vetra flokki á Landsmótinu í fyrra mun koma fram fram í kynningu ásamt fleirum mjög athyglisverðum hestum.
Reiðkennarar og atvinnuknapar verða með sýnikennslu þar sem farið verður yfir mismunandi aðferðir við þjálfun hrossa. Jakob Svavar Sigurðsson heimsmeistari í tölti 2017 mun til dæmis koma með heimsmetshafann í 4vetra flokki stóðhesta Konsert frá Hofi sem hlaut 8,72 í aðaleinkunn aðeins 4 vetra gamall þar af 10,0 fyrir tölt.
Þær stöllur Olil Amble og Mette Mannseth munu einnig vera með afar fróðlegar nálganir í sínum atriðum.
Guðni Ágústsson fyrrverandi landbúnaðaráðherra mun setja samkomuna kl 11:00 og Dr. Þorvaldur Kristjánsson ábyrgðarmaður hrossaræktar hjá RML mun slíta henni. Áætluð samkomulok er 16:00.
Ítarlegri dagskrá mun líta dagsins ljós þegar nær dregur helgi.
Kveðja
Stjórn Hrossaræktarsamtaka Suðurlands
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH