Ræktunarbú ársins 2010
Í dag fór fram ráðstefnan „Hrossarækt 2010“ í Bændahöllinni í Reykjavík. Á ráðstefnunni var veitt viðurkenning fyrir Ræktunarbú ársins…
14 glæsileg bú voru tilnefnd en þau voru:
1 Auðsholtshjáleiga, Gunnar Arnarson, Kristbjörg Eyvindsdóttir og börn.
2 Austurkot, Páll Bragi Hólmarsson og Hugrún Jóhannsdóttir.
3 Árgerði, Magni Kjartansson.
4 Berg, Jón Bjarni Þorvarðarson og Anna Dóra Markúsdóttir.
5 Efri-Rauðilækur, Baldvin Ari Guðlaugsson, Ingveldur Guðmundsdóttir, Guðlaugur Arason og Snjólaug Baldvinsdóttir.
6 Flugumýri 2, Páll Bjarki Pálsson og Eyrún Anna Sigurðardóttir.
7 Hólar í Hjaltadal. Háskólinn á Hólum.
8 Hvoll, Ólafur Hafsteinn Ólafsson og Margré Sigurlaug Stefánsdóttir.
9 Ketilsstaðir/Selfoss/Syðri-Gegnishólar, Bergur Jónsson og Olil Amble.
10 Kvistir, Kristjón Kristjánsson og Günter Weber.
11 Prestsbær, Inga og Ingar Jensen.
12 Skipaskagi, Jón Árnason og Sigurveig Stefánsdóttir.
13 Ytra-Dalsgerði, Hugi Kristinsson og Kristinn Hugason.
14 Þjóðólfshagi 1, Sigurður Sigurðarson og Sigríður Anna Þórðardóttir.
Fyrir valinu varð ræktunin Ketilsstaðir/Selfoss/Syðri-Gegnishólar, Bergur Jónsson og Olil Amble.
Bergur og Olil reka öflugt ræktunarbú og var mikill fjöldi hrossa úr ræktun þeirra sýndur á þessu ári og útkoman frábær. Þau hafa byggt upp glæsilega aðstöðu utanum starfsemina í Efri–Gegnishólum og er mikils að vænta þaðan á komandi árum. Eiðfaxi óskar Bergi og Olil til hamingju með árangurinn.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH