Ræktunardagur Eiðfaxa – Brynjar og Kaldalón

  • 21. október 2020
  • Sjónvarp

Ræktunardagur Eiðfaxa var haldinn hátíðlegur í frábæru veðri laugardaginn 9.maí í Víðidalnum í Reykjavík. Þetta var fyrsti opni viðburðurinn sem haldinn var að fyrstu bylgju Covid-19 lokinni en þó í fullri sátt við sóttvarnaryfirvöld.

Margir frábærir hesta komu fram þennan dag jafnt sem einstaklingar, afkvæmahestar eða sem fulltrúar sinna ræktunarbúa. Á næstu vikum munum við deila hér á vefsíðu Eiðfaxa þeim atriðum sem komu fram þennan skemmtilega dag.

Fyrsta atriðið sem við sýnum ykkur, lesendur góðir, eru þeir Brynjar frá Bakkakoti sem sýndur var af Gústafi Ásgeiri Hinrikssyni og Kaldalón frá Kollaleiru sem sýndur var af Teiti Árnasyni. Sjón er sögu ríkari, góða skemmtun.

Þulir á sýningunni voru þeir Gísli Guðjónsson og Eysteinn Leifsson.

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar