Ræktunardagur Eiðfaxi – Ræktunarbúið Þjórsárbakki

  • 24. október 2020
  • Sjónvarp

Ræktunardagur Eiðfaxa var haldinn hátíðlegur í frábæru veðri laugardaginn 9.maí í Víðidalnum í Reykjavík. Þetta var fyrsti opni viðburðurinn sem haldinn var að fyrstu bylgju Covid-19 lokinni en þó í fullri sátt við sóttvarnaryfirvöld.

Margir frábærir hesta komu fram þennan dag jafnt sem einstaklingar, afkvæmahestar eða sem fulltrúar sinna ræktunarbúa. Á næstu vikum munum við deila hér á vefsíðu Eiðfaxa þeim atriðum sem komu fram þennan skemmtilega dag.

Það atriði sem við sýnum frá núna er atriði ræktunarbússins að Þjórsárbakka.  að Þjórsárbakka stunda Haraldur Þorgeirsson og Helga Haraldsdóttir hrossarækt en frá búinu hafa komið eftirtektarverð hross á undanförnum árum sem flest eiga það sameiginlegt að vera út af gæðingamóðurinni Eldingu frá Hóli.

Þulir á sýningunni voru þeir Gísli Guðjónsson og Eysteinn Leifsson.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar