Ræktunardagur Hrossaræktarfélags Andvara
Kristinn Hugason
Dagskrá: Kl. 8:30 – 12. Forskoðun kynbótahrossa í Reiðhöll – Kristinn Hugason…
Kl. 12.15 – 14. Sviðamessa í Félagsheimili á vegum Jóns Ó. Guðmundssonar. Skráning hjá: [email protected] í síðasta lagi fimmtudaginn 3. Febr. Verð kr. 2.500.
Undir borðhaldi verður fræðsluerindi í umsjá Kristins Hugasonar: Hrossaræktin í Ytra-Dalsgerði. Hrossarækt í 100 ár
Kl. 15-18. Folaldasýning í Reiðhöll. Keppt verður í flokki hryssa og hesta.
Skráningargjald fyrir hross í forskoðun og folaldasýningu er kr. 1000 fyrir félagsmenn Hrossaræktarfélags Andvara, kr 1500 fyrir aðra. Forskoðun og folaldasýning er öllum opin.
Gefa þarf upp IS númer, nafn, lit, föður, móður og eiganda
Skráning hjá [email protected] í síðasta lagi 3.febr. kl 20.
Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing
Landsliðsteymi Danmerkur fyrir árið 2027 klárt