Ræktunardagur Hrossaræktarfélags Andvara

  • 28. janúar 2012
  • Fréttir
Ræktunardagur Hrossaræktarfélags Andvara

Ræktunardagur Hrossaræktarfélags Andvara verður haldinn hátíðlegur laugardaginn 4. febrúar nk.

Dagskrá:
Kl. 8:30 – 12.  Forskoðun kynbótahrossa í Reiðhöll – Kristinn Hugason

Kl. 12.15 – 14.  Sviðamessa í Félagsheimili á vegum Jóns Ó. Guðmundssonar. Skráning hjá: [email protected]  í síðasta lagi fimmtudaginn 2. Febr.   Verð kr. 2.500. Undir borðhaldi mun Ellert Þ Benediktsson dýralæknir á Hellu halda fræðsluerindi um fósturvísaflutninga.

Kl. 15-18.  Folaldasýning í Reiðhöll. Keppt verður í flokki hryssa og hesta. Dómari  Ævar Örn Guðjónsson. Skráningargjald fyrir hross  í forskoðun og folaldasýningu er kr 1000 fyrir félagsmenn Hrossaræktarfélags Andvara, kr 1500 fyrir aðra. Forskoðun og folaldasýning er öllum opin. Greiðsla á staðnum með pen. Gefa þarf upp IS númer, nafn, lit, föður, móður og eiganda. Skráning hjá [email protected]  í síðasta lagi 2. febrúar kl. 20.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link