Ræktunarmaður/menn ársins 2012

  • 16. október 2012
  • Fréttir
Eiðfaxi Image

Auðsholtshjáleiga var ræktunarbú ársins í fyrra og hefur langoftast allra búa hlotið titilinn. Á myndinni taka Gunnar Arnarson og Kristbjörg Eyvindsdóttir við æðstu heiðursverðlaunum fyrir Gára frá Auðsholtshjáleigu á LM2011.

Fagráð í hrossarækt hefur valið þau bú/ræktendur sem tilnefnd eru til árlegrar heiðursviðurkenningar Bændasamtaka Íslands ræktunarmaður/menn ársins.

Fagráð í hrossarækt hefur valið þau bú/ræktendur sem tilnefnd eru til árlegrar heiðursviðurkenningar Bændasamtaka Íslands ræktunarmaður/menn ársins. Valið stóð á milli 74 búa sem náð höfðu athygliverðum árangri á árinu. Ákveðið var að tilnefna 13 bú/ræktendur sem hljóta munu viðurkenningu á ráðstefnunni Hrossarækt 2012 sem haldin verður í félagsheimilinu Hlégarði í Mosfellsbæ laugardaginn 17. nóvember næstkomandi. Á ráðstefnunni munu sigurlaunin verða afhent ræktunarmönnum ársins.

Í stafrófsröð eru tilnefnd bú:

    •    Auðsholtshjáleiga, Gunnar Arnarson, Kristbjörg Eyvindsdóttir og börn.
    •   
    •    Berg, Jón Bjarni Þorvarðarson og Anna Dóra Markúsdóttir.
    •   
    •    Blesastaðir 1A, Magnús Trausti Svavarsson og Hólmfríður Birna Björnsdóttir.
    •   
    •    Eystra-Fróðholt, Ársæll Jónsson og Anna Fía Finnsdóttir.
    •   
    •    Hlemmiskeið 3, Árni Svavarsson og Inga Birna Ingólfsdóttir.
    •   
    •    Hrossaræktarbúið Fet, Karl Emil Wernersson.
    •   
    •    Kvistir, Günter Weber og Kristjón Kristjánsson.
    •   
    •    Lækjarbotnar, Guðlaugur H. Kristmundsson og Jónína Hrönn Þórðardóttir.
    •   
    •    Prestsbakki, Jón Jónsson og Ólafur Oddsson.
    •   
    •    Skipaskagi, Jón Árnason og Sigurveig Stefánsdóttir.
    •   
    •    Skrúður, Sigfús Jónsson og Ragnhildur Guðnadóttir.
    •   
    •    Syðri-Gegnishólar, Bergur Jónsson og Olil Amble.
    •   
    •    Ytra-Vallholt, Björn Grétar Friðriksson og Harpa H. Hafsteinsdóttir.

f.h. fagráðs í hrossarækt.
Guðlaugur V. Antonsson.
Hrossaræktarráðunautur BÍ.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link