Ræktunarveisla á Flúðum
Hrossaræktarfélag Hrunamanna gekkst fyrir ræktunarsýningu í reiðhöllinni á Flúðum 15 apríl.
Sýnd voru hross frá fjórum búum í sveitarfélaginu auk allnokkura aðkomuhrossa. Einnig hlupu nokkrir ungfolar um völlinn og gáfu góðar vonir. Í búsýningum komu fram hross úr ræktun Ernu Óðinsdóttur og Helga Kjartanssonar Hvammi I, frá Efra – Langholti, Túnsbergi og fjögur afkvæmi Gjósku frá Miðfelli 5. Þau Kristbjörg og Gunnar á Grænhól gáfu æskulýðsnefnd Smára folatoll undur Svein Hervar og sýndir voru tveir synir hans í reið en hesturinn verður notaður í Hrunagirðingu í sumar.
Börn úr Smára komu með skemmtilega sýningu en æskylýðsstarf félagsins er öflugt.
Þessi sýning var sú fyrsta hjá ræktunarfélaginu og var einskonar æfing fyrir öfluga sýningu á 100 ára afmæli Hrossaræktarfélagsins eins og einn sýningargestur sagði en þeir voru fjölmargir.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH