Rætt um reiðvegi

  • 12. október 2012
  • Fréttir
Rætt um reiðvegi

Reiðvegamál verða til umræðu á 58. Landsþingi LH sem haldið sem hefst að viku liðinni. Fyrir þinginu liggja fjögur þingskjöl er varða reiðvegi og aðgengi hestamanna í þéttbýli og innan þjóðgarða.

Stjórn LH er nokkuð harðorð í greinagerðum sínum, en hún leggur annars vegar fyrir þingið tillögu að hvatningu til innanríkisráðherra að tryggja réttarstöðu hestamanna á reiðvegum landsins.  „Sú árátta að veikja stöðugt réttarstöðu hestamanna á kostnað vélknúinna ökutækja á reiðvegum landsins er óþolandi og eykur stórlega hættu á slysum í hestamennsku,“ segir í greinagerð. Hins vegar vill stjórnin mótmæla því við umhverfisráðherra að stöðugt sé þrengt að umferð hesta innan þjóðgarða. „Hesturinn er partur af byggða- og stjórnsýslusögu Íslands og hefur því farið um landið þar sem maðurinn hefur farið um landið. Því er sú árátta að skilgreina hestaumferð með annarri umferð vélknúinna faratækja með öllu ólíðandi,“ segir í greinagerð sem fylgir tillögunni.

Hestamannafélagið Fákur tekur í svipaða strengi í tillögu sinni en þar skorar félagið á Landsambandið að stuðla að og efla til mikilla muna bæði viðhald og lagningu reiðvega í þéttbýli. „Oftar en ekki gleymast reiðstígar á skipulagi eða það er gert ráð fyrir reiðstígum of nærri hjólreiðastígum eða annari umferð, eins t.d. á deiliskipulagi fyrir Heiðmörk. Hestamenn verða að leggja meiri metnað í að standa vörð um að áfram sé gert sé ráð fyrir mörgum góðum og öruggum reiðleiðum á útivistarsvæðum okkar í þéttbýli. Þannig stuðlum við enn frekar að sérstöðu Íslands sem lands hestamennskunnar.“

Þá beinir Fákur einnig þeim tilmælum til stjórnar LH að tryggja aðgengi hestamanna að Skógarhólum á Þingvöllum. „Skógarhólar eru samofnir menningu hestamennsku í landinu og mikilvægur áningastaður hestamanna, hvort sem menn eru að ríða á milli landshluta eða sér til ánægju í og við þjóðgarðinn á Þingvöllum. Þess vegna er mikilvægt að tryggja aðgengi og festa í sessi “yfirráðarétt” hestamanna yfir Skógarhólum,“ segir í greinagerð félagsins um málið.

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link