Ragnar Snær efstur í unglingaflokki
16 keppendur voru í unglingaflokk og áttu íslendingar þrjá fulltrúa. Ragnar Snær Viðarsson er efstur eftir forkeppni á Skorra frá Þúfu í Landeyjum en þeir hlutu 8,59 í einkunn. Skorri er undan Orra frá Þúfu í Landeyjum og Skeifu frá Þúfu í Landeyjum.
Fimmta eftir forkeppni er Elva Rún Jónsdóttir á Bragadótturinni Bellu frá Blönduósi en þær hlutu 8,48 í einkunn. Dagur Sigurðarson endaði sjötti eftir forkeppni með 8,47 í einkunn en hann sat Rögni frá Minni-Völlum en Rögnir er undan Óm frá Kvistum og Tíbrá frá Minni-Völlum.
Niðurstöður – Unglingaflokkur – Forkeppni
| Sæti. | Knapi | Hross | Einkunn |
|---|---|---|---|
| 1 | Ragnar Snær Viðarsson | Skorri frá Þúfu í Landeyjum | 8.590 |
| 2 | Hilma Pettersson | Laukur frá Varmalæk | 8.586 |
| 3 | Elisa Lund Iskov | Arður frá Miklholti | 8.528 |
| 4 | Molly Erikssom | Erró frá Ármóti | 8.502 |
| 5 | Elva Rún Jónsdóttir | Bella frá Blönduósi | 8.482 |
| 6 | Dagur Sigurðarson | Rögnir frá Minni-Völlum | 8.470 |
| 7 | Alfons Bergqvist | Karmen från Gunvarbyn | 8.456 |
| 8 | Andrea Isager Lindberg | Þrymur frá Álfhólum | 8.454 |
| 9 | Lowa Walfridsson | Seifur från Skälleryd | 8.446 |
| 10 | Filippa Gram | Kristall frá Skagaströnd | 8.408 |
| 11 | Thea Oxaas-Egge | Dans fra Sigersberg | 8.392 |
| 12 | Julia Gudmundsdottir | Baldi frá Feti | 8.378 |
| 13 | Aida Bu Lofstad | Djass fra Røysland | 8.366 |
| 14 | Silja Stefánsdottir | Magni fra Kvalen | 8.360 |
| 15 | Óskar Erik Kristjánsson | Vakandi frá Varmalæk 1 | 8.356 |
| 16 | Ranja Halsdóttir Djurhuus | Sirkill frá Þorkelshóli 2 | 8.258 |
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH