Ráslisti í fjórgang
Meistaradeild Cintamani í hestaíþróttum hefst á morgun fimmtudagskvöldið 9.febrúar með keppni í fjórgangi. Mikil spenna er fyrir deildinni þetta árið eins og undanfarinn ár og mun Eiðfaxi fylgjast grannt með gangi mála og taka viðtöl við knapa og aðstandendur á mótsstað.
Mótið hefst klukkan 18:30 á setningu en keppni hefst klukkan 19:00
Til leiks eru skráðir flestir af sterkustu fjórgangs keppnishestum síðasta keppnistímabils auk fjölmargra ungra og óreyndra hesta. Ljóst er að breiddin í keppnishestum er alltaf að aukast og þegar rennt er í gegnum ráslistann má sjá afar spennandi hesta.
Af þekktum keppnishestum má nefna að Elin Holst mætir með hinn magnaða keppnishest Frama frá Ketilsstöðum, sem má segja að hafi verið stjarna íslandsmótsins á Selfossi í fyrra þar sem þau unnu m.a. fjórgang með glæsi einkunnina 8,30 í A-úrslitum. Liðsfélagi hennar, Bergur Jónsson, mætir með sína reyndu keppnishryssu Kötlu frá Ketilsstöðum. Rikjandi heimsmeistari í fjórgangi, Guðmundur Björgvinsson mætir með Straum frá Feti en hann hefur hæst farið í 7,40 í forkeppni í fjórgangi.
Jakob Svavar Sigurðsson mætir með Júlíu frá Hamarsey en þau fóru hæst í 7,73 í forkeppni á Íslandsmótinu í fyrra. Í þessum hópi má einnig nefna Hinrik Bragason og Pistill frá Litlu-Brekku, Sigurð V. Matthíasson og Arð frá Efri-Þverá, Sylvíu Sigurbjörnsdóttur og Golu frá Hofsstöðum í Garðabæ en öll eiga þau það sameiginlegt að hafa verið í b-úrslitum á Íslandsmótinu.
Mikið er um unga og lítið reynda keppnishesta sem gaman verður að fylgjast með. Árni Björn Pálsson sem hefur unnið deildina síðastliðinn 3 ár mætir til leiks með Flaum frá Sólvangi, gífurlega efnilegan fjórgangshest undan Gaum frá Auðsholtshjáleigu. Þórarinn Ragnarsson mætir með Hring frá Gunnarsstöðum sem vakið hefur mikla eftirtekt síðastliðinn ár fyrir fallega framgöngu. Sigursteinn Sumarliðason mætir á enn einum hátt dæmda klárhestinum Vák frá Vatnsenda, sá er undan Mídas frá Kaldbak og Dáð frá Halldórsstöðum og gefur ætternið til kynna að þar fari lofandi keppnishestur.
Þessi upptalning er aðeins brot af þeim geysimögnuðu keppnishestum í fjórgangi sem etja munu kappi í Meistaradeild Cintamani fimmtudagskvöldið 9.febrúar í Fákaseli.
Hér er ráslistinn i heild sinni. Nr. Knapi Hestur Lið
1 Elvar Þormarsson Flóki frá Oddhóli Lýsi/Oddhóll/Þjóðólfshagi
2 Árni Björn Pálsson Flaumur frá Sólvangi Top Reiter
3 Elin Holst Frami frá Ketilsstöðum Gangmyllan
4 Hans Þór Hilmarsson Roði frá Syðri-Hofdölum Ganghestar / Margrétarhof
5 Guðmundur F. Björgvinsson Straumur frá Feti Árbakki/Hestvit/Svarthöfði
6 Guðmar Þór Péturssio Brúney frá Grafarkoti Heimahagi
7 Ásmundur Ernir Snorrason Frægur frá Strandarhöfði Auðsholtshjáleiga
8 Bergur Jónsson Katla frá Ketilsstöðum Gangmyllan
9 Sylvía Sigurbjörnsdóttir Gola frá Hofsstöðum Auðsholtshjáleiga
10 Lena Zilenski Prinsinn frá Efra-Hvoli Lýsi/Oddhóll/Þjóðólfshagi
11 Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir Óskar frá Breiðsstöðum Ganghestar/Margrétarhof
12 Matthías Leó Matthíasson Nanna frá Leirubakka Top Reiter
13 Freyja Amble Gísladóttir Álfastjarna frá Syðri-Gegnishólum Gangmyllan
14 Þórarinn Ragnarsson Hringur frá Gunnarsstöðum Hrímnir/Export-Hestar
15 Þórdís Erla Gunnarsdóttir Sölvi frá Auðsholtshjáleigu Auðsholtshjáleiga
16 Eyrún Ýr Pálsdóttir Hafrún frá Ytra-Vallholti Hrímnir/Export-Hestar
17 Sigurbjörn Bárðarson Hrafn frá Breiðholti í Flóa Lýsi/Oddhóll/Þjóðólfshagi
18 Hinrik Bragason Pistill frá Litlu-Brekku Árbakki/Hestvit/Svarthöfði
19 Jakob Svavar Sigurðsson Júlía frá Hamarsey Top Reiter
20 Sigurður V. Matthíasson Arður frá Efri-Þverá Ganghestar / Margrétarhof
21 Hanna Rún Ingibergsdóttir Mörður frá Kirkjubæ Hrímnir/Export-Hestar
22 Sigursteinn Sumarliðason Vákur frá Vatnsenda Heimahagi
23 Hulda Gústafsdóttir Valur frá Árbakka Árbakki/Hestvit/Svarthöfði
24 Davíð Jónsson Ólína frá Skeiðvöllum Heimahagi
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH