Ráslisti í parafimi
Næsta keppnisgrein í Suðurlandsdeildinni er Parafimi. Parafimi er keppnisgrein sem einungis er keppt í í Suðurlandsdeildinni en keppt var í henni í fyrsta skipti fyrir tveimur árum og hefur það heppnast alveg gríðarlega vel.
Sérstaða Suðurlandsdeildarinnar er sú að einungis fer fram liðakeppni ásamt því að hvert lið er skipað atvinnumönnum og áhugamönnum. Í parafimi myndar atvinnumaður og áhugamaður par eða tveir áhugamenn og þurfa þeir í sinni sýningu að uppfylla ákveðnar kröfur til þess að eiga möguleika á sem hæstri einkunn. Dómarar dæma í þrem pörum 1. gangtegundir, 2. æfingar og 3 flæði (framkvæmd, fjölhæfni og reiðmennska).
Staðan í liðakeppninni er gríðarlega jöfn eftir fyrstu tvær greinarnar sem voru fjórgangur og fimmgangur og því er allt opið. Lið Töltrider leiðir með 104,5 stig, í öðru sæti er lið Heimahaga með 104 stig og í því þriðja lið Húsasmiðjunnar með 100,5 stig. En heildarstöðuna má sjá í viðburðinum á facebook.
Reglur parafimi er að finna í viðburði Suðurlandsdeildarinnar á Facebook með því að smella hér. https://www.facebook.com/events/282360215809533/?event_time_id=282360225809532
Við hvetjum alla til þess að fjölmenna í Rangárhöllina á Hellu annaðkvöld, þriðjudaginn 19. febrúar, þar sem keppt verður í parafimi í þriðja sinn. 22 öflug pör eru skráð til leika og er búist við hörku flottum sýningum.
Keppni hefst klukkan 18:00
| Suðurlandsdeildin 2019 – Parafimi | |||||
| 19.2.2019 – keppni hefst kl. 18:00 | |||||
| Par nr. | At / Á | Knapi | Hestur | Litur | Lið |
| 1 | At | Brynja Amble Gísladóttir | Goði frá Ketilsstöðum | Brúnn | Ásmúli |
| 1 | Á | Sara Camilla Lundberg | Bylgja frá Ketilsstöðum | Bleikálóttur | Ásmúli |
| 2 | At | Sigurður Sigurðarson | Rauða-List frá Þjóðólfshaga 1 | Rauður | Krappi |
| 2 | Á | Stine Randers Præstholm | Hallbera frá Þjóðólfshaga 1 | Brúnn | Krappi |
| 3 | At | Hlynur Guðmundsson | Magni frá Hólum | Móálóttur | Equsana |
| 3 | Á | Vilborg Smáradóttir | Dreyri frá Hjaltastöðum | Rauður | Equsana |
| 4 | At | Lárus Jóhann Guðmundsson | Tinna frá Árbæ | Brúnn | Austurás/Sólvangur |
| 4 | Á | Ármann Sverrisson | Sörli frá Brúnastöðum 2 | Brúnn | Austurás/Sólvangur |
| 5 | At | Hekla Katharína Kristinsdóttir | Ýmir frá Heysholti | Rauðblesóttur | Árbæjarhjáleiga/Hjarðartún |
| 5 | Á | Karen Konráðsdóttir | Lind frá Hárlaugsstöðum 2 | Móálóttur | Árbæjarhjáleiga/Hjarðartún |
| 6 | At | Hjörvar Ágústsson | Ás frá Kirkjubæ | Brúnn | Töltrider |
| 6 | Á | Eygló Arna Guðnadóttir | Heppni frá Þúfu í Landeyjum | Brúnn | Töltrider |
| 7 | At | Jóhanna Margrét Snorradóttir | Prins frá Hellu | Rauðglófextur | Heimahagi |
| 7 | Á | Jóhann Ólafsson | Djörfung frá Reykjavík | Bleikskjótt | Heimahagi |
| 8 | At | Vignir Siggeirsson | Ásdís frá Hemlu II | Moldótt | Hemla/Hrímnir/Strandarhöfuð |
| 8 | Á | Sanne Van Hezel | Sylvía frá Skálakoti | Rauðstjörnótt | Hemla/Hrímnir/Strandarhöfuð |
| 9 | At | Ólafur Andri Guðmundsson | Árdís frá Garðabæ | Jörp | Fet/Kvistir |
| 9 | Á | Vera Evi Schneiderchen | Vakning frá Feti | Jörp | Fet/Kvistir |
| 10 | At | Ólafur Þórisson | Aría frá Miðkoti | Brún | Húsasmiðjan |
| 10 | Á | Sarah Maagaard Nielsen | Sóldís frá Miðkoti | Leirljós | Húsasmiðjan |
| 11 | At | Ólafur Ásgeirsson | Glóinn frá Halakoti | Rauður | Vöðlar/Snilldarverk |
| 11 | Á | Aasa Elisabeth Emelie Ljungberg | Skorri frá Skriðulandi | Brúnn | Vöðlar/Snilldarverk |
| 12 | At | Þorbjörn Hreinn Matthíasson | Glámur frá Hafnarfirði | Rauðblesóttur | Ásmúli |
| 12 | Á | Erla Brimdís Birgisdóttir | Fursti frá Kanastöðum | Rauður | Ásmúli |
| 13 | At | Lea Schell | Eldey frá Þjórsárbakka | Rauð | Krappi |
| 13 | Á | Róbert Bergmann | Tinna frá Lækjarbakka | Brún | Krappi |
| 14 | At | Kristín Lárusdóttir | Aðgát frá Víðivöllum fremri | Brún | Equsana |
| 14 | Á | Guðbrandur Magnússon | Straumur frá Valþjófsstað 2 | Brúnn | Equsana |
| 15 | At | Ásta Björnsdóttir | Sunna frá Austurási | Leirljós | Austurás/Sólvangur |
| 15 | Á | Svenja Kohl | Polka frá Tvennu | Rauðblesótt | Austurás/Sólvangur |
| 16 | At | Klara Sveinbjörnsdóttir | Snægrímur frá Grímarsstöðum | Brúnn | Árbæjarhjáleiga/Hjarðartún |
| 16 | Á | Svandís Lilja Stefánsdóttir | Brjánn frá Eystra-Súlunesi I | Rauður | Árbæjarhjáleiga/Hjarðartún |
| 17 | At | Alma Gulla Matthíasdóttir | Neisti frá Strandarhjáleigu | Rauðstjörnóttur | Töltrider |
| 17 | Á | Hulda Jónsdóttir | Flóki frá Strandarhjáleigu | Rauðstjörnóttur | Töltrider |
| 18 | At | Telma Tómasson | Baron frá Bala 1 | Móálóttur | Heimahagi |
| 18 | Á | Halldór Gunnar Victorsson | Von frá Bjarnanesi | Rauð | Heimahagi |
| 19 | At | Ásmundur Ernir Snorrason | Dökkvi frá Strandarhöfði | Brúnn | Hemla/Hrímnir/Strandarhöfuð |
| 19 | Á | Matthías Elmar Tómasson | Austri frá Svanavatni | Jarpur | Hemla/Hrímnir/Strandarhöfuð |
| 20 | At | Sigvaldi Lárus Guðmundsson | Lottó frá Kvistum | Brúnstjörnóttur | Fet/Kvistir |
| 20 | Á | Elín Hrönn Sigurðardóttir | Nói frá Hrafnsstöðum | Brúnn | Fet/Kvistir |
| 21 | At | Davíð Jónsson | Ólína frá Skeiðvöllum | Brúnn | Húsasmiðjan |
| 21 | Á | Katrín Sigurðardóttir | Yldís frá Hafnarfirði | Grár | Húsasmiðjan |
| 22 | At | Eva Dyröy | Sesar frá Þúfum | Brúnn | Vöðlar/Snilldarverk |
| 22 | Á | Pernille Moelgaard Nielsen | Bikar frá Sperðli | Móálóttur | Vöðlar/Snilldarverk |
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH