1. deildin í hestaíþróttum Ráslisti klár fyrir fimmganginn

  • 26. mars 2026
  • Fréttir

Lið Fornusanda leiðir í liðakeppninni eins og er. Mynd: Gunnhildur Ýrr

1. deild Hringdu í hestaíþróttum er kl. 19:00 í kvöld

Fjórða keppnisgreinin í 1. deild Hringdu fer fram í nýju reiðhöllinni í Sörla í Hafnarfirði í kvöld, 26. mars. Keppni hefst stundvíslega kl. 19:00 og verður Flóra veisluþjónusta með hlaðborð eins og undanfarin keppniskvöld. Mótið er einnig í beinni útsendingu á EiðfaxaTV.

Það eru 24 knapar skráðir til leiks og eru það Helgi Þór Guðjónsson og Brekka frá Litlu-Brekku sem ríða fyrst í braut.

Spennandi keppni framundan

Af þeim knöpum sem voru í A úrslitum í fyrra er enginn af þeim skráðir til leiks svo við munum sjá nýjan sigurvegarar í ár. Á listanum er hátt dæmd hross, Íslandsmeistarar og önnur reynd pör svo þetta ætti að vera hörkukeppni í kvöld á Sörlastöðum.

Lið Fornusanda leiðir í liðakeppninni með 175 stig. Það eru þau Sigvaldi Lárus Guðmundsson á Jóni forseta frá Hesjuvöllum, Lea Schell á Húna frá Efra-Hvoli og Hlynur Guðmundsson á Neista frá Ytri-Skógum sem keppa fyrir liðið í kvöld. Sigvaldi og Lea eru á reyndum hrossum í fimmgangi en Hlynur er að mæta með Neista í sína fyrstu fimmgangskeppni en þeir hafa keppt í A flokki með góðum árangri. Lið Hrímnis er í öðru sæti í liðakeppninni með 143 stig og lið HorseDay í því þriðja með 110 stig.

Þórdís Inga Pálsdóttir leiðir í einstaklingskeppninni með 22 stig. Hún er skráð til leiks á Bjarti frá Finnastöðum sem er 11 vetra og hefur einhverja reynslu í fimmgangi en þetta er þeirra frumraun saman. Önnur er Katla Sif Snorradóttir með 20 stig og Lea Schell í því þriðja með 13,5 stig.

Það stefnir í spennandi keppni í fimmgangi í 1. deild Hringdu en fyrir þá sem eiga ekki heimangengt geta horft á mótið í beinni á EiðfaxaTV.

Ráslisti – Fimmgangur
  1. Helgi Þór Guðjónsson Brekka frá Litlu-Brekku HorseDay
  2. Sigvaldi Lárus Guðmundsson Jón forseti frá Hesjuvöllum Fornusandar
  3. Hermann Arason Ósk frá Vindási Vindás/Stóðhestaval
  4. Reynir Örn Pálmason Lína frá Miklaholtshelli Hringdu
  5. Katla Sif Snorradóttir Hyggja frá Hestabergi Sportfákar
  6. Sunna Sigríður Guðmundsdóttir Muggur hinn mikli frá Melabergi Tommy Hilfiger
  7. Bergrún Ingólfsdóttir Árvakur frá Kálfholti HorseDay
  8. Sigurður Baldur Ríkharðsson Myrkvi frá Traðarlandi Hrímnir
  9. Frederica Fagerlund Salómon frá Efra-Núpi Kidka/Hestakofi
  10. Lea Schell Húni frá Efra-Hvoli Fornusandar
  11. Snorri Dal Gimsteinn frá Víðinesi 1 Sportfákar
  12. Sigrún Högna Tómasdóttir Sirkus frá Torfunesi Hringdu
  13. Þorvaldur Logi Einarsson Saga frá Kálfsstöðum Kidka/Hestakofi
  14. Þórdís Inga Pálsdóttir Bjartur frá Finnastöðum Hrímnir
  15. Rakel Katrín Sigurhansdóttir Blakkur frá Traðarholti Tommy Hilfiger
  16. Birna Olivia Ödqvist Hetja frá Hofi I Vindás/Stóðhestaval
  17. Thelma Dögg Tómasdóttir Mozart frá Torfunesi Hringdu
  18. Hlynur Guðmundsson Neisti frá Ytri-Skógum Fornusandar
  19. Benedikt Ólafsson Tobías frá Svarfholti Hrímnir
  20. Eysteinn Tjörvi Kristinsson Greifi frá Söðulsholti Kidka/Hestakofi
  21. Ólöf Rún Guðmundsdóttir Hraundís frá Selfossi Tommy Hilfiger
  22. Páll Bragi Hólmarsson Taktur frá Hrísdal Sportfákar
  23. Henna Johanna Sirén Auga-Steinn frá Árbæ HorseDay
  24. Vilborg Smáradóttir Vakar frá Auðsholtshjáleigu Vindás/Stóðhestaval

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link