Ráslisti þeirra allra sterkustu
Ístöltið Þeir allra sterkustu fer fram í Skautahöllinni í laugardag annað kvöld.
Meðfylgjandi er ráslisti kvöldsins en meðal keppenda eru keppnishross á uppleið og þaulvanir gæðingar. Sigurvegari síðustu þriggja ára, Halldór Guðjónsson, mætir ekki með meistara Nátthrafn heldur stóðhestinn Bláskjá frá Kjarri sem vakið hefur athygli á keppnisvellinum að undanförnu. Hin þýska Frauke Schenzel mun sitja stóðhestinn Dáta frá Hrappsstöðum sem hefur farið fallega undir John Kristni Sigurjónssyni undanfarin ár, en sjálfur mun hann mæta á rýmishryssunni Brynju frá Bakkakoti. Þórarinn Eymundsson mætir á Kraftssyninum unga, Takti frá Varmalæk og heimsmeistarinn Jóhann Skúlason er skráður á stóðhestinum glæsilega Fróða frá Staðartungu.
Veislan hefst kl. 19.30 og kostar aðgangur að veislunni 3.500 kr.
Holl Knapi Hestur
1 Hinrik Bragason Smyrill frá Hrísum
1 Sigurbjörn Bárðarson Frétt frá Oddhóli
1 Helga Una Björnsdóttir Rest frá Efri-Þverá
2 Sigurður Sigurðarson Glæða frá Þjóðólfshaga I
2 Leó Geir Arnarson Krít frá Miðhjáleigu
2 Leó Hauksson Ormur frá Sigmundarstöðum
3 Sigurður Vignir Matthíasson Punktur frá Varmalæk
3 Jakob Svavar Sigurðsson Ófelía frá Holtsmúla 1
3 Arna Ýr Guðnadóttir Þróttur frá Fróni
4 Sigursteinn Sumarliðason Skjönn frá Skjálg
4 Lena Zielinski Líf frá Þjórsárbakka
4 Elsa Hreggviðsdóttir Mandal Grýta frá Garðabæ
5 Camilla Petra Sigurðardóttir Dreyri frá Hjaltastöðum
5 Sigurður Óli Kristinsson Þöll frá Heiði
5 Eyjólfur Þorsteinsson Háfeti frá Úlfsstöðum
6 Þórarinn Eymundsson Taktur frá Varmalæk
6 John Kristinn Sigurjónsson Brynja frá Bakkakoti
6 Magnús Bragi Magnússon Óskasteinn frá Íbishóli
7 Sara Ástþórsdóttir Sóllilja frá Álfhólum
7 Árni Björn Pálsson Fura frá Enni
7 Högni Sturluson Ýmir frá Ármúla
8 Þorvaldur Árni Þorvaldsson Gjafar frá Hvoli
8 Viðar Ingólfsson Vornótt frá Hólabrekku
8 Þórdís Erla Gunnarsdóttir Hera frá Auðsholtshjáleigu
9 Hulda Gústafsdóttir Sveigur frá Varmadal
9 Frauke Schenzel Dáti frá Hrappsstöðum
9 Elvar Einarsson Hlekkur frá Lækjamóti
10 Elías Þórhallsson Staka frá Koltursey
10 Jóhann R. Skúlason Fróði frá Staðartungu
10 Halldór Guðjónsson Bláskjár frá Kjarri
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH