Reglugerð um velferð hrossa kynnt
Fundurinn er öllum opinn og verður haldinn í Sprettshöllinni fimmtudaginn 11. desember kl. 20.. Á dagskrá er auk hefðbundinna aðalfundarstarfa kynning á nýjum farandgripum sem veittir eru hæst dæmdu hrossum félagsmanna, sýnt verður myndband með öllum hrossunum og lýst kjöri á ræktunarmanni Hrossaræktarfélags Spretts 2014.
Dr. Sigríður Björnsdóttir dýralæknir hrossasjúkdóma hjá Mast mun síðan kynna nýsetta reglugerð um velferð hrossa.
Fyrirspurnir og almennar umræður.
Í reglugerðinni eru fjölmörg nýmæli sem vert er að þekkja en ekki hefur verið haldinn kynningarfundur á reglugerðinni fyrr hér á höfuðborgarsvæðinu. Allir sem áhugasamir eru um hrossarækt og velferð hrossa eru hvattir til að mæta.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH