Reiðhallarsýning Þyts 2. apríl
Laugardagskvöldið 2. apríl nk. kl. 20.30 verður haldin reiðhallarsýning í Þytsheimum á Hvammstanga.
„Í ár verða mörg áhugaverð atriði á boðstólnum og má þar nefna hinar vinsælu Dívur, hestafimleika sem hafa vakið mikla athygli, ræktunarbú, stóðhesta, gæðingafimi, skeið og margt fleira.
Vonandi sjá sem flestir fært að mæta og eiga skemmtilega kvöldstund saman,“ segir í fréttatilkynningu frá hestamannafélaginu Þyt.
Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing