Reiðhallir opna og skólahald hefst að nýju

  • 4. maí 2020
  • Fréttir

Háskólinn á Hólum

Í dag 4.maí hefur samkomubanni verið aflétt að hluta og eru fjöldatakmarkanir nú miðaðar við 50 manns í stað 20 eins og verið hefur.

Af þessu tilefni munu reiðhallir nú opna en verða takamarkaðar við það að mest mega 4 fullorðnir þjálfa innandyra í einu og þurfa knapar að gæta 2ja metra reglunnar auk handþvottar og sprittunar eins og áður.

Þá opna háskólar að nýju í dag, meðal þeirra er Háskólinn á Hólum og verður því líf þar á göngunum að nýju. Eins og Eiðfaxi sagði frá hafa kennarar við skólann nýtt sér fjarnámslausnir við reiðkennslu. Þann 5.júní er svo stefnt að reiðsýningu brautskráningarnema og útskrift.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link