Reiðkennarar óskast

  • 20. september 2022
  • Fréttir
Hestamannafélagið Geysir óskar eftir reiðkennurum fyrir næsta starfsár

Hestamannafélagið Geysir óskar eftir reiðkennurum fyrir næsta starfsár. Öflugt námskeiðahald með fjölbreyttu sniði hefur verið í gangi hjá Geysi undanfarin ár og engin breyting verður þar á í haust og vetur.

Hestamannafélagið Geysir óskar eftir áhugasömum einstaklingum sem vilja taka þátt í okkar fjölbreytta og öfluga félagsstarfi. Á þetta bæði við um allt æskulýðsstarf og námskeiðahald fyrir fullorðna. Hefðbundin reiðnámskeið verða á sínum stað en einnig er Geysir opin fyrir öllum þeim hugmyndum sem þið reiðkennarar eru með bæði þið sem eruð hér á okkar félagssvæði og aðrir reiðkennarar.

Umsókn óskast á netfangið hmfgeysir@gmail.com fyrir sunnudagskvöld 2.október 2022.

Ef einhverjar spurningar vakna þá er hægt að hafa samband við formann í síma 8637130.

Stjórnin

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar