Reiðkennari óskast
Hestamannafélagið Léttir á Akureyri, óskar eftir að ráða reiðkennara fyrir starfsárið 2012-2013. Um er að ræða kennslu í knapamerkjum 1-5, almenn reiðnámskeið fyrir alla aldurshópa ásamt hugmyndavinnu, aðstoð við sýningar og annað tilfallandi. Bókleg kennsla í knapamerkjum er kennd fyrir áramót. Á Akureyri er ein stærsta reiðhöll landsins og öll aðstaða til kennslu er frábær. Umsækjendur sendi póst á [email protected] með öllum upplýsingum fyrir 20. september.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH