Reiðmaðurinn 2017-2019
Kæru hestamenn.
Við erum nú í óða önn að leggja lokahönd á að undirbúa næsta tímabil hjá okkur og búist er við að tveir til þrír nýjir hópar hefji nám á haustönn 2017.
Meðal þess sem liggur fyrir hjá okkur núna er að ákveða staðsetningar fyrir þá hópa sem hefja nám haustið 2017.
Hestamannafélög eða hópar sem hafa áhuga á að fá námið á viss svæði eru eindregið hvött til þess að hafa samband og láta okkur vita.
Upplýsingar um þetta áhugaverða nám er að finna á vefsíðu Landbúnaðarháskóla Íslands á www.lbhi.is undir flipanum endurmenntun og námskeið.
Við munum staðfesta staðsetningar fyrir nýja hópa á allra næstu vikum og opna fyrir umsóknir í námið í beinu framhaldi.
Nánari upplýsingar veitir Hinrik Þór Sigurðsson reiðkennari og verkefnisstjóri verklegrar kennslu í Reiðmanninum á netfangi [email protected] eða í síma 8435377
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH