Reiðmaðurinn á Flúðum

  • 20. apríl 2012
  • Fréttir
Reiðmaðurinn á Flúðum

Námskeiðsröðin Reiðmaðurinn hefur mælst vel fyrir hjá hestamönnum en í gær útskrifaði Landbúnaðarháskóli Íslands um 60 nemendur sem hafa stundað námið síðustu tvo vetur.

Námið er ætlað öllum áhugasömum yfir 16 ára aldri sem stundað hafa útreiðar og hestamennsku sér til ánægju en vilja ná betri tökum á hrossaræktinni og reiðmennskunni.
 
Námið var kennt á sex stöðum víðs vegar um landið í vetur, þar á meðal á Flúðum þar sem Ísleifur Jónasson sá um verklega kennslu. Nú hefur Lbhí í samráði við stjórn reiðhallarinnar á Flúðum ákveðið að bjóða námið aftur fram næsta haust ef næg þátttaka næst.
 
Allar upplýsingar um námið og umsóknareyðublað sem þarf að prenta út og póstleggja eru á www.lbhi.is/namskeid undir Reiðmaðurinn í vinstri stiku. Umsóknafrestur til 1. júní.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link