Reiðnámskeið og járningarnámskeið
Gunnar Halldórsson, Íslandsmeistari í járningum, verður með járningarnámskeið í Söðulsholti
Sölvi Sigurðsson verður með reiðnámskeið í Söðulsholti helgina 11.-12. janúar en Söðulsholt er á Snæfellsnesi. Kennt verður í einkatímum og hesthúspláss eru fyrir hendi fyrir hrossin yfir helgina.
Laugardaginn 18. janúar ætlar svo íslandsmeistarinn í járningum, Gunnar Halldórsson að vera með járningarnámskeið í Söðulsholti.
Nánari upplýsingar í síma 899 5625 eða 861 0175 og með netfanginu [email protected].
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH