Ríðum í Reykholt Höskuldi til heiðurs –
17. júní 2011 verður hestamönnum eftirminnilegur fyrir fleiri sakir en þær að vera þjóðhátíðar dagur okkar. Þennan dag verður nefnilega vígt „Höskuldargerði“ í Reykholti í Borgarfirði…
Þennan dag ætla hestamenn að hópast með reiðskjóta sína í Borgarfjörðinn og ríða annaðhvort frá Gróf eða Hofstöðum í Reykholt og sitja þar messu en að henni lokinni verður vígt Höskuldargerði og afhjúpaður minnisvarði um höfðingjann og hestamanninn Höskuld á Hofstöðum. Höskuldur var heiðursfélagi í Félagi tamningamanna, hestamannafélaginu Faxa og Landssambandi hestamannafélaga og munu þessir aðilar koma að samkomunni með sveitungum hans og vinum.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH