Risastórt Suðurlandsmót
Vel á sjötta hundruð skráningar eru á Suðurlandsmótið í hestaírþóttum, sem haldið verður á Gaddstaðaflötum við Hellu 15.-19. ágúst. Nöfn flestra keppenda eru kunnugleg en þó er ljóst að nokkrar af stóru stjörnunum eru komnar í frí. Þó eru skráðir í tölt þekkt nöfn eins og Sigurbjörn Bárðarson með Jarl frá Mið-Fossum og Leó Geir Arnarson með Krít frá Miðhjáleigu, sem var ein helsta stjarna LM2012 þótt henni hafi fatast í milliriðlinum.
Í gæðingaskeiði má sjá gamla garpa á borð við Freyði frá Hafsteinsstöðum, sem er sem fyrr undir hnakk hjá Siggurði Sigurðarsyni, og þar er einnig Eyjólfur Þorsteinsson á Veru frá Þóroddsstöðum, svo einhverjir séu nefndir. Í kappreiðaskeiðinu er líf og fjör, þar eru í allt hátt í sextíu skráningar, flestar í 100 metra skeiði, eða þrjátíu og þrjár.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH