Eiðfaxi TV Risavika framundan á EiðfaxaTV

  • 1. júní 2026
  • Fréttir

Það verður nóg um að vera í vikunni á EiðfaxaTV Ljósmynd: Gunnar Freyr/Horses of Iceland

Fjórar beinar útsendingar í vikunni!

Það er óhætt að segja að það verði nóg um að vera á streymisveitu Eiðfaxa í þessari viku, því hvorki meira né minna en þrjár beinar útsendingar fara af stað í dag, mánudag, og sú fjórða bætist við á morgun. Auk þess að hægt er fylgjast með öllu í beinni útsendingu minnum við á að allt efni verður aðgengilegt inni á streymisveitunni eftir á, svo hægt er að horfa þegar það hentar hverjum og einum. Það verður því mikið álag á starfsfólki EiðfaxaTV næstu daga, sem mun leggja sig fram til hins ýtrasta við að gera öllum þessum viðburðum sem best skil!

Reykjavíkurmeistaramót Fáks (WR)

Reykjavíkurmeistaramótið hefst í dag og lýkur á sunnudaginn. Í ár er mótið haldið viku fyrr en venjulega, sem þýðir að börn og unglingar eru ekki komin í sumarfrí og hefur verið tekið tillit til þess í dagskránni eins og kostur er.

Heildarfjöldi skráninga er heil 830, svo búast má við harðri og spennandi keppni í öllum aldurs- og styrkleikaflokkum. Dagskrána má finna í HorseDay appinu og hér neðar í þessari frétt. Hægt er að fylgjast með tilkynningum og öðrum upplýsingum á Facebook-síðu mótsins. Þá minnir mótanefnd keppendur á að kyns sér vel lög og reglur og þá sérstaklega breytingarnar sem tóku gildi 1. apríl síðastliðinn.

Reiðdómar á þremur kynbótasýningum

Samhliða mótinu í Víðidal verður sýnt frá reiðdómum á þremur kynbótasýningum. Sýningarnar á Rangárbökkum og Sörlastöðum hefjast í dag, en sýningin á Hólum fer af stað á morgun, þriðjudag. Sýningunum á Rangárbökkum og Sörlastöðum lýkur með yfirlitssýningu á föstudag en Hólasýningin klárast með yfirliti á fimmtudag.

Dagskrá Reykjavíkurmeistaramótsins

Hér má sjá tímasetningar mótsins í Víðidal sem verður í beinni alla vikuna:
Mánudagur, 1. júní 2026
11:30 Fimmgangur F1 meistaraflokkur
14:20 Kaffihlé
14:30 Fimmgangur F1 ungmennaflokkur
16:50 Kaffihlé
17:00 Fimmgangur F2 meistaraflokkur
18:30 Kvöldmatarhlé
19:00 Fimmgangur F2 2. flokkur
19:40 Fimmgangur F2 unglingaflokkur
20:55 Fimmgangur F2 1. flokkur
22:10 Dagskrárlok
Þriðjudagur, 2. júní 2026
12:00 Fjórgangur V1 ungmennaflokkur
14:00 Hlé
14:10 Fjórgangur V1 ungmennaflokkur
16:20 Kaffihlé
16:40 Fjórgangur V5 barnaflokkur
17:25 Fjórgangur V5 unglingaflokkur
17:50 Fjórgangur V5 2. flokkur
18:05 Kvöldmatarhlé
18:50 Skeið 250m, svo 150m – 1. og 2. sprettur
21:15 Dagskrárlok
Miðvikudagur, 3. júní 2026
10:00 Fjórgangur V1 meistaraflokkur
12:30 Hádegishlé
13:10 Fjórgangur V1 meistaraflokkur
15:40 Kaffihlé
15:55 Fjórgangur V2 meistaraflokkur
16:30 Fjórgangur V2 barnaflokkur
17:45 Kvöldmatarhlé
18:30 Fjórgangur V2 unglingaflokkur
19:50 Fjórgangur V2 2. flokkur
20:35 Fjórgangur V2 1. flokkur
21:50 Dagskrárlok
Fimmtudagur, 4. júní 2026
09:00 Tölt T2 ungmennaflokkur
10:55 Kaffihlé
11:05 Tölt T2 meistaraflokkur
13:10 Hádegishlé
13:40 Tölt T3 meistaraflokkur
14:10 Tölt T3 1. flokkur
14:55 Tölt T3 unglingaflokkur
15:30 Kaffihlé
15:40 Tölt T3 barnaflokkur
16:20 Tölt T3 2. flokkur
17:00 Tölt T7 barnaflokkur
17:40 Tölt T7 unglingaflokkur
17:55 Tölt T7 2. flokkur
18:15 Kvöldmatarhlé
19:00 Skeið 150m, svo 250m – 3. og 4. sprettur
21:25 Dagskrárlok
Föstudagur, 5. júní 2026
10:00 Gæðingaskeið PP1 meistaraflokkur
11:15 Gæðingaskeið PP1 ungmennaflokkur
12:00 Kaffihlé
12:10 Gæðingaskeið PP1 1. flokkur, 2. flokkur
12:35 Gæðingaskeið PP1 unglingaflokkur
13:00 Hádegishlé
13:40 Tölt T4 1. flokkur
14:10 Tölt T4 2. flokkur
14:15 Tölt T4 barnaflokkur
14:40 Tölt T4 unglingaflokkur
15:15 Kaffihlé
15:25 Tölt T1 ungmennaflokkur
18:15 Kvöldmatarhlé
19:00 Tölt T1 meistaraflokkur
22:10 Dagskrárlok
Laugardagur, 6. júní 2026
09:00 B-úrslit tölt T7 barnaflokkur
09:15 B-úrslit fjórgangur V2 unglingaflokkur
09:40 B-úrslit fjórgangur V2 1. flokkur
10:05 B-úrslit fjórgangur V1 ungmennaflokkur
10:30 B-úrslit fjórgangur V1 meistaraflokkur
10:55 B-úrslit fjórgangur V2 barnaflokkur
11:15 Pollaflokkur og hádegishlé
11:55 100m flugskeið – skeiðbraut
13:45 Hlé
14:05 B-úrslit tölt T2 ungmennaflokkur
14:35 B-úrslit tölt T2 meistaraflokkur
15:05 A-úrslit tölt T4 2. flokkur
15:25 A-úrslit tölt T4 1. flokkur
15:45 A-úrslit tölt T4 barnaflokkur
16:05 A-úrslit tölt T4 unglingaflokkur
16:25 Hlé
16:35 A-úrslit fjórgangur V5 2. flokkur
16:55 A-úrslit fjórgangur V5 barnaflokkur
17:15 A-úrslit fjórgangur V5 unglingaflokkur
17:35 A-úrslit tölt T7 2. flokkur
17:50 A-úrslit tölt T7 barnaflokkur
18:05 A-úrslit tölt T7 unglingaflokkur
18:20 Kvöldmatarhlé
19:00 B-úrslit fimmgangur F1 ungmennaflokkur
19:30 B-úrslit fimmgangur F1 meistaraflokkur
20:00 B-úrslit tölt T3 barnaflokkur
20:20 B-úrslit tölt T1 ungmennaflokkur
20:50 B-úrslit tölt T1 meistaraflokkur
21:20 A-úrslit tölt T2 ungmennaflokkur
21:45 A-úrslit tölt T2 meistaraflokkur
22:10 Dagskrárlok
Sunnudagur, 7. júní 2026
08:30 A-úrslit fjórgangur V2 barnaflokkur
08:55 A-úrslit fjórgangur V2 unglingaflokkur
09:20 A-úrslit fjórgangur V2 1. flokkur
09:45 A-úrslit fjórgangur V2 2. flokkur
10:10 A-úrslit fjórgangur V2 meistaraflokkur
10:35 Kaffihlé
10:45 A-úrslit fjórgangur V1 ungmennaflokkur
11:10 A-úrslit fjórgangur V1 meistaraflokkur
11:35 A-úrslit fimmgangur F2 unglingaflokkur
12:05 A-úrslit fimmgangur F2 2. flokkur
12:35 Hádegishlé
13:05 A-úrslit fimmgangur F2 meistaraflokkur
13:35 A-úrslit fimmgangur F2 1.flokkur
14:05 A-úrslit fimmgangur F1 meistaraflokkur
14:35 A-úrslit fimmgangur F1 ungmennaflokkur
15:05 Kaffihlé
15:15 A-úrslit tölt T3 meistaraflokkur
15:35 A-úrslit tölt T3 barnaflokkur
15:55 A-úrslit tölt T3 unglingaflokkur
16:15 A-úrslit tölt T3 2. flokkur
16:35 A-úrslit tölt T3 1. flokkur
16:55 A-úrslit tölt T1 ungmennaflokkur
17:25 Fyrirmyndarfélag ÍSÍ
17:35 A-úrslit tölt T1 meistaraflokkur
18:05 Dagskrárlok

Landsmót 2026 í beinni á EiðfaxaTV

Með því að velja ársáskrift að EiðfaxaTV slá áskrifendur tvær flugur í einu höggi: Þeir fá tæpa 4 mánuði frítt, miðað við mánaðaráskrift, og fá aðgang að Landsmóti hestamanna innifalið í pakkanum. Vert er að vekja athygli á því að Landsmótið verður ekki innifalið í hefðbundinni mánaðaráskrift og því mikill fjárhagslegur ávinningur fólgin í því að næla sér í ársmiðann strax.

Ert þú í ársáskrift ? Ef ekki geturðu alltaf breytt úr mánaðrlegum í greiðslum. Hafðu samband á eidfaxi@eidfaxi.is og við græjum málið.

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link