Svíþjóð Sænska landsliðið klárt

  • 12. júlí 2023
  • Fréttir

Máni Hilmarsson og Gljátoppur frá Miðhrauni eru í sænska landsliðinu

Fimmtán knapar munu keppa fyrir hönd Svíþjóðar á Heimsmeistaramótinu í ágúst í Hollandi

Búið er að velja í sænska landsliðið fyrir Heimsmeistaramótið í Hollandi í ágúst. „Við eigum mjög mikla breidd af knöpum á toppnum í Svíþjóð, sem er mjög ánægjulegt, en það hefur líka gert valið sérstaklega krefjandi og þurfum við að skilja nokkra mjög hæfileikarík pör eftir heima,“ segir í tilkynningu frá sænsku valnefndinni en þar kemur einnig fram að knaparnir eru valdir með það í huga að vinna eins margar medalíur og möguleiki er.

Hér fyrir neðan eru þeir sem hafa verið valdir í landsliðið en auk þess eiga Svíar þrjá ríkjandi heimsmeistarar; Magnús Skúlason, Jack Eriksson og Elsu Teverud.

Sænska landsliðið:

Fullorðnir

  • Máni Hilmarsson, Gljátoppur from Miðhrauni
  • Jamila Berg, Toppur frá Auðsholtshjáleigu
  • Kristján Magnússon, Oskar from Lindeberg
  • Gudmundur Einarsson, Draumur from Tängmark
  • Vignir Jónasson, Felix from Änghaga. Personal reserve Eyvindur frá Eyvindarmúla
  • Filippa Helltén, Óðinn from Inchree
  • Caspar Logan Hegardt, Oddi from Skeppargården
  • Til vara: Jessica Rydin, Rosi frá Litlu-Brekku

Ungmenni

  • Tekla Petersson, Vatnadís från Noastallet
  • Lowa Walfridsson, Seifur från Skälleryd
  • Alicia Palm, Ljúfa från Ekehol
  •  Lára Gardarsdottir Hesselman, Àlfur från Knutshyttan
  • Amelie Segerström, Kopar frá Sunnuhvoli

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link