Sær er gæðingafaðir
Sær frá Bakkakoti er gæðingafaðir, á því leikur enginn vafi. Er hann frekar að sækja í sig veðrið hvað á líður. Hann gefur flott hross með hreinar gangtegundir. Um 50 afkvæmi hans eru skráð með keppnisárangur. Nú eru átta afkvæmi hans komin með einkunn inn á LM2011.
Í fyrra voru skráð undan honum 503 afkvæmi og þar af 91 með fullnaðar dóm. Nú eru skráð undan honum 530 afkvæmi og fullsýndum hefur fjölgað í 104. Þar á meðal eru nokkrir nýir toppar, sýndir á þessu ári.
Má þar nefna Konsert frá Korpu, sem stóð efstur 6 vetra stóðhesta á Sörlastöðum með 8,52 í aðaleinkunn. Hann er undan Hátíð frá Hellu, sem er undan Gáska frá Hofstöðum og Nönu frá Hellu, Hrafnsdóttur frá Holtsmúla.
A landsliðshópur Íslands