Sameiginleg úrtaka 10-12.júní á Hellu

  • 24. maí 2022
  • Fréttir
Sameiginleg úrtaka hestamannafélagana Geysis, Sindra, Kóps og Jökuls

Sameiginleg úrtaka hestamannafélagana Geysis, Sindra, Kóps og Jökuls fer fram helgina 10-12.júní 2022.

Keppt verður í a-flokki, b-flokki, barnaflokki, unglingaflokki og ungmennaflokki. Riðnar verða tvær umferðir, sú fyrri á föstudag og laugardag, sú seinni á sunnudeginum. Allir verða að taka þátt í fyrri umferð til að hafa möguleika á að taka þátt í seinni umferðinni. Engin úrslit verða riðin.

Skráning í fyrri umferð fer fram á sportfeng (aðildarfélag er Geysir) og hefst fljótlega og lýkur mánudaginn 6.júní kl 23:59. Við biðjum alla að vera tímanlega að skrá og bíða ekki fram á seinustu stund. Skráning í seinni umferð fer fram strax að lokinni fyrri umferð og fer einnig fram á sportfeng.

Ef vandræði koma upp er hægt að hafa samband í síma 8637130.
Afskráningar fara fram í sima 8637130.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link