Sameiginlegt hestaþings Kóps og Sindra

  • 26. júní 2024
  • Tilkynning
Ný styttist í að Landsmót hefjist en það er líf eftir Landsmót

Sameiginlegt Hestaþing Hestamannafélaganna Kóps og Sindra verður haldið fyrsta laugardag eftir Landsmót eða  13.júlí á Sindravelli við Pétursey.

Skráning er hafin á Sportfeng og stendur til kl 23.59 þriðjudaginn 9.júlí.

Mótið er opið og verður keppt verður í eftirfarandi flokkum. Polla-, barna-, unglinga- og ungmennaflokki og A-, B og C-flokki gæðinga. Tölti T3 Stjörnublikkstölti, tölti T7 Skálakotstölti og 100 m flugskeiði.

Það eru vegleg peningaverðlaun í T3  sem Stjörnublikk styrkir og Skálakotsfjölskyldan gefur folatoll undir Kór frá Skálakoti í T7. Það er því til mikils að vinna.

 Skráningargjöld í ungmennaflokk, A-flokk, B- og C flokki er kr. 5000.-

 Í barna og unglinga 2000,-

 Í tölti T3 og T7 er skráningargjaldið 6000.-

 Engin skráningargjöld eru í pollaflokk og 100 m skeiði. Skráning í þeim flokkum fer fram á staðnum

Skráning telst ekki gild fyrr en greiðsla hefur borist og staðfesting á henni á tölvupóstfangið[email protected] . Skráning er á www.sportfengur.com.

Afskráningar berist á netfangið  [email protected]

Ef vandamál koma upp við skráningu er hægt að hafa samband við Kristínu Lár í síma 8980825

Dagskrá og ráslistar verða birtir á Horsedayappinu eftir að skráningu lýkur.

Hlökkum til að sjá ykkur.

Stjórnir og mótanefndir Kóps og Sindra

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link