Sameiginlegt töltmót Smára, Loga og Trausta
Sameiginlegt töltmót Smára, Loga og Trausta verður haldið í Reiðhöllinni á Flúðum miðvikudaginn 20. apríl n.k. kl. 17.
Keppt verður í eftirfarandi flokkum:
Barnaflokkur (10-13 ára)
Unglingaflokkur (14-17 ára)
2. Flokkur Fullorðnir
1. Flokkur fullorðnir
Keppt eftir FIPO reglum, 2 inn á í einu í forkeppni.
Skráningu þarf að vera lokið í síðasta lagi kl 19.00 mánudagskvöldið 18. Apríl á netfangið [email protected] eða í síma 8666507 eftir kl. 18. Skráningu þarf að fylgja nafn og kennitala knapa, is númer, nafn og litur hests, í hvaða flokk er skráð og upp á hvora hönd skal riðið. Hver skráning er 1500 kr í barnaflokk og 2.000 kr í aðra flokka og greiðist á staðnum. Einungis verður tekið við peningum.
Nánari dagskrá og fyrirkomulag mun birtast á heimasíðum hestamannafélaganna.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH