Samningur um LM 2022 undirritaður
Á setningarathöfn Áhugamannadeildarinnar var skrifað var undir samning milli Landsmóts ehf. og Hestamannafélagsins Spretts um að halda Landsmót 2022. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu á vef Landssambands Hestamannafélaga.
Samningurinn byggist á viljayfirlýsingu sem LM ehf. og Sprettur gerðu á vormánuðum 2016 og er í sama formi og samningur sem gerður var við Fák um landsmót 2018 og Rangárbakka um landsmót 2020, þ.e. rekstur mótsins verður alfarið á höndum félagsins.
Sprettur er fjölmennasta hestmannafélagið á landinu með um 1600 iðkendur og mikill kraftur hefur verið í félagsstarfi þar. Góðar aðstæður eru á félagssvæðinu og samningurinn gefur tækifæri til að byggja enn meira upp á svæðinu, það má því segja að spennandi tímar séu framundan hjá Spretti.
Það voru þrír stjórnarmenn í LM ehf. sem undirrituðu samninginn, þeir Lárus Ástmar Hannesson og Ólafur Þórisson frá LH og Sveinn Steinarsson frá Félagi hrossabænda, ásamt formanni Spretts, Sverri Einarssyni.
Þess má geta að LM ehf. hefur nú þegar auglýst landsmót 2024 til úthlutunar.
Ljósmynd sem fylgir fréttinni er af vef LH
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH