Samstarfssamningur LM og GDLH

  • 21. maí 2011
  • Fréttir
Samstarfssamningur LM og GDLH

Landsmót ehf. og Gæðingadómara félag Landssambands hestamannafélaga (GDLH) hafa skrifað undir samstarfssamning. Samningurinn er þess efnis að GDLH mun annast dómgæslu í gæðingakeppni Landsmóts auk þess að sinna skeiðeftirliti vegna skeiðkappreiða. Að sögn Lárusar, formanns GDLH, mun stór og góður hópur hæfra landsdómara innan félags GDLH annast dómstörfin.

Undir samninginn skrifuðu Haraldur Gunnarsson framkvæmdastjóri Landsmóts ehf. og Lárus Á. Hannesson formaður GDLH.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link