Sannir sigurvegarar kunna taka ósigri með reisn

  • 9. júní 2023
  • Fréttir
Vegna greinar sem birtist í Eiðfaxa 2. júní sl. með fyrirsögninni „Hagræðing úrslita í Meistaradeildinni!?!“ þá sér stjórn Meistaradeildarinnar sig knúna til að koma eftirfarandi á framfæri.

Í áðurnefndri grein er verið að halda því fram að stjórn hafi verið að hagræða úrslitum á lokakvöldi Meistaradeildar í hestaíþróttum, með öðrum orðum verið að svindla. Það er ekki bara gefið til kynna að stjórn hafi svindlað heldur einnig að óháðir sérfræðingar og ráðgjafar sem kallaðir voru inn til að fara yfir kærur sem bárust væru óhæfir.

Kærurnar tvær bárust ekki inn til deildarinnar fyrr en rúmlega þremur sólarhringum eftir að keppni lauk.

Í reglum deildarinnar kemur fram að knapar og lið hafa eina klukkustund eftir lok keppni til að kæra framkvæmd eða útreikninga keppnisgreinar. Að þeim tíma liðnum standa niðurstöður. Kærur sem berast að loknu móti fara á sameiginlegt borð stjórnar, mótsstjórnar og eins fulltrúa knaparáðs, sem verða að kynna niðurstöðu innan tveggja sólarhringa frá því að kæra berst. Einkunnir dómara eru ekki kæranlegar.

Í þessu tilfelli þá var fulltrúi knaparáðs liðsmaður í liði Top Reiter, önnur kæran sem barst inn sneri að sigri Top Reiter liðsins, fulltrúinn var því óhæfur til að koma að kærumálum, þá var gripið á það ráð að kalla inn varafulltrúa í knaparáði.

Settur var saman vinnuhópur fimm óháðra aðila, notast var við andmæla- og agareglur í hestaíþróttum, til að fjalla um málefni með faglegum hætti og í framhaldi að móta svar um niðurstöðu hópsins við kærum.

Í hópnum voru algjörlega óháðir aðilar:

  • Halldór Gunnar Victorsson, yfirdómari Meistaradeildar í hestaíþróttum 2022 og 2023, formaður HÍDÍ
  • Hulda Gústafsdóttir, fulltrúi knapa og keppandi í Meistaradeildar í hestaíþróttum til fjölda ára
  • Marta Gunnarsdóttir, stjórn Meistaradeildar í hestaíþróttum frá hausti 2022 og fulltrúi í keppnisnefnd mótsins
  • Sóley Margeirsdóttir, stjórn Meistaradeildar í hestaíþróttum frá hausti 2020 og framkvæmdaaðili mótsins
  • Sigurbjörn Eiríksson, formaður Meistaradeildar í hestaíþróttum frá hausti 2020 og mótsstjóri mótsins

Kærurnar snerust um stigagjöf eftir úrslit í flugskeiði í gegnum höll. Kærendur vildu meina að eftir keppni í flugskeiði þar sem þrír knapar voru með jafnan besta tímann að þá ætti að skipta stigum á milli aðila. Kærendur vísa í grein í grein 2.5 í reglum Meistaradeildarinnar: „Verði knapar jafnir í keppnisgrein skiptast stigin jafnt á milli þeirra.“

Í öllum vetrardeildum í hestaíþróttum þar sem keppt er í flugskeiði í gegnum höll þá er notast við reglur FEIF um flugskeið P2, nema sprettfæri skeiðsins er styttra (70 metrar í HorseDay höll) og skeiðað er í gegnum höll, annað er nákvæmlega eins, reglurnar varðandi sætaröðun er eftirfarandi:

 „Í kappreiðum þar sem eru fleiri en einn sprettur skal gefin einkunn fyrir besta tímann. Einkunnirnar byggjast á skráðum tíma hestsins, sem byggjast á viðeigandi breytingu tíma í einkunn, með tveimur aukastöfum. Séu tímar jafnir er sætaröðun ákvörðuð út frá öðrum besta tíma hestsins og svo koll af kolli. Besti tíminn gildir til einkunnar. Séu tímar jafnir er það næst besti tími hests sem raðar í sæti o.s.frv.“

Kærendurnir sem standa á bak við ásakanir um að úrslitum hafi verið hagrætt, svindlað, hafi sigrað bæði einstaklings og liðakeppni Meistaradeildar í hestaíþróttum margoft, annar kærandi sat í stjórn deildarinnar tvö keppnistímabil sem fulltrúi liðseiganda og tók þátt í yfirfara reglur deildarinnar bæði tímabilin, kærendur hafa ALDREI í gegnum tíðina gert athugasemdir við keppnisfyrirkomulagið né reglur í flugskeið í gegnum höll. Sömu leikreglur hafa verið notaðar árum saman, árið 2020 þá kom upp algjörlega sama staða, þrír knapar voru með saman besta tímann, það sem réði úrslitum það árið og taldi til stiga var tími úr hinum sprettunum. Hægt er að telja fleiri sambærileg dæmi í gegnum tíðina í Meistaradeild í hestaíþróttum.

Eins og áður hefur komið fram þá notast aðrar innahúsdeildir sem keppa í flugskeiði í gegnum höll sama fyrirkomulag og notast er við í Meistaradeildinni. Samskonar atvik kom upp á lokakvöldi Uppsveitardeildarinar kvöldinu áður en keppt var á lokakvöldi Meistaradeildarinnar, þessi staða kom einnig upp á lokakvöldi KS deildarinnar, viku eftir að Meistaradeild lauk.

Það leikur engin vafi á að það var engin knapi jafn eftir tvær umferðir á lokakvöldi Meistaradeildarinnar 2023 í flugskeiði í gegnum höll, þannig að aldrei reyndi á að knapar þyrftu að deila með sér stigum.

Niðurstaða vinnuhópsins er sú að útreikningar í einstaklingskeppni, eftir að úrslit í flugskeiði í gegnum höll, hafði verið yfirfarin og staðfest er eftirfarandi:

  1. sæti Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir á Ylfu frá Miðengi      Tímarnir 5,66 og 5,74
  2. sæti Árni Björn Pálsson á Ögra frá Horni Tímarnir 5,66 og 5,75
  3. sæti Hans Þór Hilmarsson á Vorsól frá Stóra -Vatnsskarði Tímarnir 5,66 og 0 (lá ekki)

Það er einnig niðurstaða vinnuhópsins að stigaútreikningur í liðakeppni standa og eru eftirfarandi:

  1. sæti Top Reiter
  2. sæti Hjarðartún
  3. sæti Ganghestar/Margrétarhof

Eftir að úrslit í flugskeiði í gegnum höll voru kunnug þá var ljóst að tveir knapar og tvö lið voru stigahæst eftir veturinn, vildi stjórn fara vel yfir öll stig og úrslit deildarinnar ásamt því að rýna í leikreglur til að forðast rangfærslur og að sú niðurstaða sem yrði kynnt væri rétt. Úrslit réðust í einstaklings- og liðakeppni út frá betri árangri yfir allt tímabilið, hver knapi og svo hvort lið hefði verið oftar í fyrsta, öðru og þriðja sæti yfir keppnistímabilið.

Stjórn Meistaradeild í hestaíþróttum þakkar fyrir frábært keppnistímabili. Það sem stendur upp úr er gríðarlega spennandi deild, allt frá upphafi til enda, þar sem að úrslitin réðust á lokakvöldinu. Það var einnig virkilega ánægjulegt að sjá hversu margir áhorfendur mættu á staðinn, nutu veitinga og mynduðu þannig skemmtilega stemningu og um leið pressu á liðseigendur og knapa að mæta ávallt með sinn allra besta hestakost.

Hestaíþróttin okkar er frábær og oft ríkir mikil spenna, Íslandshestaheimurinn okkar er lítill og því er gott að hafa eftirfarandi í huga

Í leik og starfi telst það góður eiginleiki að kunna að tapa. Taka ósigri með reisn, læra af reynslunni og nýta hana til góðs. Að sama skapi er mikilvægt að kunna að sigra. Sýna hógværð þegar vel gengur, sýna aðstæðunum virðingu og gæta þess að vanmeta ekki fyrirliggjandi áskoranir.

 

Fh. stjórnar Meistaradeild Líflands hestaíþróttum

Sigurbjörn Eiríksson

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link