Seðill og Tesla á toppnum
Seðill frá Árbæ er efstur í A flokki eftir forkeppni á gæðingamóti Fáks, knapi Árni Björn Pálsson Mynd: Gunnhildur Ýrr, Draumfara myndataka
Gæðingamót Fáks sem er líka úrtaka fyrir Landsmóts fer fram nú um helgina. Fákur er stærsta hestamannafélag landsins og getur félagið sent 16 fulltrúa í hverjum flokki.
Nú þegar er búin fyrri umferð úrtöku lokið en boðið er upp á tvær umferðir og fer sú seinni fram á morgun en skráning er í hana í dag. Skráningu lýkur klukkan 21:00 í dag, laugardag 23. maí
Efstur í A flokki gæðinga er Seðill frá Árbæ en hann hlaut 8,82 í einkunn, knapi er Árni Björn Pálsson. Annar með 8,70 í einkunn er Kastor frá Garðshorni á Þelamörk, knapi Konráð Valur Sveinsson og þriðji Nagli frá Flagbjarnarholti með 8,69 en knapi á honum er Sigurbjörn Bárðarson.
Í B flokki er það Tesla frá Ásgarði vestri með 8,75 í einkunn, knapi Jón Herkovic. Jarl frá Skúfsstöðum og Eyrún Ýr Pálsdóttir eru í öðru sæti með 8,71 í einkunn og Steinn frá Stíghúsi og Þorgeir Ólafsson í því þriðja með 8,67.
Fyrrum Landsmótssigurvegarar á toppnum í yngri flokkunum
Það var gaman að sjá ríkjandi Landsmótssigurvegarann í B flokki, Safír frá Mosfellsbæ í barnaflokknum en hann og Helga Rún Sigurðardóttir standa efst með 8,75 í einkunn. Í unglingaflokki eru það Viktor Leifsson og Biskup frá Ólafshaga sem eru með forustuna með 8,55 í einkunn en Biskup er einnig fyrrum landsmótssigurvegari en hann vann ungmennaflokkinn á Landsmóti 2024 með knapa sínum þá Benedikt Ólafssyni. Lilja Rún Sigurjónsdóttir og Draupnir frá Dimmuborg eru efst í ungmennaflokknum með 8,63 í einkunn.
Sýningargreinar á Landsmóti
Keppt verður í A flokki ungmenna í fyrsta sinn á Landsmóti en um er að ræða sýningargrein, ásamt B flokki áhugamanna. Fyrirkomulagið er það sama og í hinum gæðingaflokkunum. Níu ungmenni kepptu í A flokki ungmenna svo þau komast öll inn á mótið. Selma Leifsdóttir er efst á Dal frá Meðalfelli með 8,41 í einkunn.
Átta tóku þátt í B flokki áhugamanna og eru það þau Hrafnhildur Jónsdóttir og Vinur frá Sauðárkróki sem standa efst með 8,59 í einkunn.
Mótið í beinni á EiðfaxaTV
Hægt er að horfa á mótið í beinni á EiðfaxaTV. Mótið hefst kl. 9:00 í fyrramálið en hér fyrir neðan er dagskrá morgundagsins ásamt niðurstöðum:
09:00 Seinni umferð
Barnaflokkur – úrslit
Unglingaflokkur – úrslit
Ungmennaflokkur – úrslit
B flokkur áhugamanna – úrslit
B flokkur – úrslit
A flokkur ungmenna – úrslit
A flokkur – úrslit
Dagskrárlok
Niðurstöður frá mótinu
A flokkur – Gæðingaflokkur 1 – Forkeppni
Sæti Hross Knapi Einkunn
1 Seðill frá Árbæ Árni Björn Pálsson 8,82
2 Kastor frá Garðshorni á Þelamörk Konráð Valur Sveinsson 8,70
3 Nagli frá Flagbjarnarholti Sigurbjörn Bárðarson 8,69
4-5 Hergeir frá Auðsholtshjáleigu Þórdís Erla Gunnarsdóttir 8,68
4-5 Rúrik frá Halakoti Viðar Ingólfsson 8,68
6 Silfurtoppur frá Reykjavík Matthías Sigurðsson 8,54
7 Viljar frá Auðsholtshjáleigu Þórdís Erla Gunnarsdóttir 8,54
8 Dikta frá Fornustöðum Guðmundur Björgvinsson 8,48
9 Ambassador frá Bræðraá Sigurður Vignir Matthíasson 8,46
10 Seiður frá Hólum Sveinn Ragnarsson 8,42
11 Rödd frá Auðsholtshjáleigu Þórdís Erla Gunnarsdóttir 8,39
12 Hrönn frá Stóra-Múla Sigurður Vignir Matthíasson 8,36
13 Vigur frá Kjóastöðum 3 Sigurður Vignir Matthíasson 8,34
14 Reyr frá Hárlaugsstöðum 2 Guðmundur Ásgeir Björnsson 8,31
15 Blika frá Hrauni Bjarni Sveinsson 8,27
16 Bláfeldur frá Kjóastöðum 3 Sigurður Vignir Matthíasson 8,09
17 Gná frá Stóru-Mástungu 2 Guðmundur Ásgeir Björnsson 8,07
18 Auga-Steinn frá Árbæ Henna Johanna Sirén 7,87
19 Dreki frá Meðalfelli Birta Ingadóttir 7,50
B flokkur Gæðingaflokkur 1 Forkeppni
Sæti Hross Knapi Einkunn
1 Tesla frá Ásgarði vestri Jón Herkovic 8,75
2 Jarl frá Skúfsstöðum Eyrún Ýr Pálsdóttir 8,71
3 Steinn frá Stíghúsi Þorgeir Ólafsson 8,67
4 Hugur frá Hólabaki Hinrik Bragason 8,67
5 Hylur frá Flagbjarnarholti Teitur Árnason 8,66
6 Sólon frá Ljósalandi í Kjós Hlynur Guðmundsson 8,65
7 Rökkvi frá Heysholti Hekla Katharína Kristinsdóttir 8,59
8 Óskaneisti frá Kópavogi Kári Steinsson 8,54
9 Loki frá Reykjavík Sigurður Vignir Matthíasson 8,53
10 Sigur frá Auðsholtshjáleigu Þórdís Erla Gunnarsdóttir 8,50
11 Skjöldur frá Stóru-Mástungu 2 Guðmundur Ásgeir Björnsson 8,47
12 Samba frá Auðsholtshjáleigu Þórdís Erla Gunnarsdóttir 8,46
13 Egill Rauði frá Stóra-Hofi Ævar Örn Guðjónsson 8,46
14 Demantur frá Vakurstöðum Teitur Árnason 8,44
15 Flosi frá Oddhóli Sara Sigurbjörnsdóttir 8,44
16 Amíra frá Hólum Selina Bauer 8,42
17 Fanney frá Vallarási Jón Herkovic 8,38
18 Hvellur frá Bæ Sigvaldi Lárus Guðmundsson 8,30
19 Fókus frá Eldborg Bjarni Sveinsson 8,28
20 Tenór frá Auðsholtshjáleigu Sigurður Vignir Matthíasson 8,24
21 Eykon frá Hafsteinsstöðum Bjarni Sveinsson 8,21
22 Hamar frá Varmá Hinrik Bragason 0,00
Gæðingaflokkur 2 Sérstök forkeppni
Sæti Hross Knapi Einkunn
1 Vinur frá Sauðárkróki Hrafnhildur Jónsdóttir 8,59
2 Kata frá Korpu Garðar Hólm Birgisson 8,46
3 Andvari frá Skipaskaga Birna Ólafsdóttir 8,41
4 Maísól frá Víðistöðum Katrín Sveinsdóttir 8,36
5 Alexandra frá Kópavogi Kristín Ísabella Karelsdóttir 8,34
6 Hróðmar frá Vatnsleysu Rúnar Bragason 8,31
7 Hlekkur frá Lyngholti Ólafur Ágúst Hraundal 8,19
8 Harpa frá Horni Erla Katrín Jónsdóttir 8,17
Barnaflokkur gæðinga – Gæðingaflokkur 1 – Forkeppni
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Helga Rún Sigurðardóttir Safír frá Mosfellsbæ 8,75
2 Embla Sirén Matthíasdóttir Fluga frá Garðabæ 8,55
3 Svala Björk Hlynsdóttir Bríet frá Auðsholtshjáleigu 8,52
4 Alexander Þór Hjaltason Týr frá Akranesi 8,48
5 Hrafnar Freyr Leósson Meyvant frá Álfhólum 8,47
6 Hrafnar Freyr Leósson Kopar frá Álfhólum 8,46
7 Oliver Sirén Matthíasson Gróa frá Þjóðólfshaga 1 8,46
8 Emilía Íris Ívarsd. Sampsted Bjarmi frá Akureyri 8,46
9 Valdís Mist Eyjólfsdóttir Hnota frá Þingnesi 8,45
10 Birna Rós Steinarsdóttir Alma frá Breiðholti í Flóa 8,45
11 Katrín Edda Viðarsdóttir Kveikja frá Kvíarhóli 8,44
12 Líf Einarsdóttir Isenbuegel Ísak frá Laugamýri 8,44
13 Alexander Þór Hjaltason Tónn frá Hestasýn 8,43
14 Hrafnar Freyr Leósson Heiðar frá Álfhólum 8,43
15 Líf Einarsdóttir Isenbuegel Mánasteinn frá Hafnarfirði 8,41
16 Embla Sirén Matthíasdóttir Glæsir frá Traðarholti 8,41
17 Jóhanna Lea Hjaltadóttir Harpa Dama frá Gunnarsholti 8,40
18 Birna Rós Steinarsdóttir Þyrnir frá Enni 8,40
19 Guðrún Lára Davíðsdóttir List frá Sauðárkróki 8,38
20 Valdís Mist Eyjólfsdóttir Stormfaxi frá Álfhólum 8,38
21 Helga Rún Sigurðardóttir Flipi frá Bergsstöðum Vatnsnesi 8,36
22 Katrín Edda Viðarsdóttir Snilld frá Laugardælum 8,30
23 Jóhanna Lea Hjaltadóttir Ópera frá Hestasýn 8,29
24 Sólbjört Elvira Sigurðardóttir Eldþór frá Hveravík 8,17
25 Helena Teitsdóttir Kráka frá Gullbringu 7,86
26 Ellý Ohm Bjarnadóttir Hugrún frá Blesastöðum 1A 7,71
27 Oliver Sirén Matthíasson Öfgi frá Káratanga 7,39
28 Amelía Sóley Fjóludóttir Kristall frá Borgarnesi 0,00
Unglingaflokkur gæðinga – Gæðingaflokkur 1 – Forkeppni
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Viktor Leifsson Biskup frá Ólafshaga 8,55
2 Bertha Liv Bergstað Hólmi frá Kaldbak 8,48
3 Sigurður Ingvarsson Liljar frá Varmalandi 8,46
4 Björney Anna Aronsdóttir Hljómur frá Borgarlandi 8,40
5 Elísabet Emma Björnsdóttir Aðgát frá Víðivöllum fremri 8,38
6 Gabríel Liljendal Friðfinnsson Ólsen frá Egilsá 8,35
7 Viktor Leifsson Glaður frá Mykjunesi 2 8,28
8 Jóna Kolbrún Halldórsdóttir Rektor frá Melabergi 8,23
9 Björney Anna Aronsdóttir Már frá Árbæ 8,21
10 Sigríður Birta Guðmundsdóttir Maístjarna frá Neðra-Seli 8,11
11 Katrín Diljá Andradóttir Valur frá Brekkubæ 7,66
12-13 Fríða Hildur Steinarsdóttir Frami frá Hjarðarholti 0,00
12-13 Súsanna Sóley Steinarsdóttir Hringadrottning frá Kolsholti 3 0,00
A flokkur ungmenna – Gæðingaflokkur 1 – Forkeppni
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Selma Leifsdóttir Dalur frá Meðalfelli 8,41
2 Matthías Sigurðsson Hvirfill frá Mánaskál 8,35
3 Bertha Liv Bergstað Sporður frá Ytra-Dalsgerði 8,32
4 Eva Kærnested Jón forseti frá Hesjuvöllum 8,18
5 Selma Dóra Þorsteinsdóttir Týr frá Hólum 8,10
6 Unnur Erla Ívarsdóttir Stillir frá Litlu-Brekku 8,01
7 Svala Björk Hlynsdóttir Þóra Dís frá Auðsholtshjáleigu 7,86
8 Sigrún Helga Halldórsdóttir Sólon frá Bræðraá 7,71
9 Camilla Dís Ívarsd. Sampsted Vordís frá Vatnsenda 7,56
B flokkur ungmenna – Gæðingaflokkur 1 – Forkeppni
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Lilja Rún Sigurjónsdóttir Draupnir frá Dimmuborg 8,63
2 Matthías Sigurðsson Tumi frá Jarðbrú 8,59
3 Eva Kærnested Styrkur frá Skák 8,55
4 Ragnar Snær Viðarsson Hinrik frá Hásæti 8,55
5 Sigurbjörg Helgadóttir Skuggabaldur frá Stórhólma 8,53
6 Lilja Rún Sigurjónsdóttir Spenna frá Skriðu 8,53
7 Eva Kærnested Logi frá Lerkiholti 8,50
8 Selma Leifsdóttir Eldey frá Mykjunesi 2 8,38
9 Ragnar Snær Viðarsson Stilla frá Kvíarhóli 8,37
10 Milla Rydström Logan Glódís frá Brekkum 8,31
11 Sigrún Helga Halldórsdóttir Stoð frá Klömbrum 8,27
12 Unnur Erla Ívarsdóttir Víðir frá Tungu 8,24
13 Hrafnhildur Klara Ægisdóttir Svenni frá Reykjavík 8,20
14 Hekla Eyþórsdóttir Garri frá Strandarhjáleigu 8,19
15 Selma Leifsdóttir Hjari frá Hofi á Höfðaströnd 8,18
16 Milla Rydström Logan Seifur frá Brekkubæ 8,09
17 Íris Marín Stefánsdóttir Þráður frá Hrafnagili 8,01
18 Svala Rún Stefánsdóttir Hrafntinna frá Hásæti 8,00
19 Sigrún Helga Halldórsdóttir Heimssigur frá Hásæti 7,94
20 Selma Dóra Þorsteinsdóttir Orka frá Búðum 0,00
Seðill og Tesla á toppnum
Kylja sló í gegn í 1.holli ársins á kynbótasýningum
„Ósanngjarnt gagnvart dómurum“
Enn þarf að fresta skráningum á kynbótasýningar
„Nýjungar í kennslu og rannsóknum“