Síðasta bikarkeppnin í kvöld

  • 11. mars 2011
  • Fréttir
Síðasta bikarkeppnin í kvöld

Síðasta mót í Bikarkeppni hestamannafélaganna á Höfuðborgarsvæðinu fer fram í kvöld, föstudaginn 11. mars kl. 20 í reiðhöllinni í Víðidal.

Keppt verður er í smala ásamt brokki og skeiði á tíma í gegnum höllina en hvert hestamannafélag sendir tvo keppendur í smalann, einn í brokk og einn í skeið.

Bikarkeppni hestamannafélaga á höfuðborgarsvæðinu er mótaröð þar sem hestamannafélögin Andvari, Fákur, Gustur, Hörður, Máni, Sóti og Sörli keppa sín á milli og safna stigum fyrir félögin.

Á hverju móti er öflugasta stuðningsliðið valið og fær það stuðningsmannalið, sem stendur sig best á öllum keppnunum þremur, bikar á lokamótinu eins og það hestamannafélag sem sigrar keppnina.

Hér eru ráslistar kvöldsins:

 

Smali

Matthías Kjartansson og Glói frá Vallanesi -Gustur

Brynja Kristinsdóttir og Fiðla frá Gunnlaugsstöðum -Sörli

Jón Bjarnason – Hörður

Már Jóhannsson og Vlíant frá Miðhjáleigu – Andvari

Jóhanna Margrét Snorradóttir og Gréta frá S.—Skóganesi- Máni

Rakel Jónsdóttir og Dagga frá Reykhólum – Fákur

Össur P. Valdimarsson og Marel frá Garðabæ -Gustur

Kristján Jónsson og Bróðir frá Stekkjardal- Sörli

Halldóra Huld Ingvarsdóttir -Hörður

Erna Björnsdóttir og Ófeigur frá Klettholti – Andvari

Snorri Ólason og Dynur frá Ásbrú- Máni

Ragnar Tómasson og Gormur frá Reykjavík – Fákur

 

Brokk

Bjarnleifur Smári Bjarnleifsson og Sýn frá Grásteini – Gustur

Daníel Ingi Smárason og Gæskur frá Brautarholti – Sörli

Hrönn Kjartansdóttir – Hörður

Axel Geirsson og Snerra frá Reykjavík – Andvari

Tinna Rut Jónsdóttir og Undri frá Bjarnastöðum -Máni

Kristín Ísabella Karelsdóttir og Blossi frá Hurðarbaki – Fákur

 

Skeið

Bjarnleifur Smári Bjarnleifsson og Mar frá Grásteini – Gustur

Ingibergur Árnason og Lenda frá Suður-Nýja-Bæ -Sörli

Halldóra Sif Guðlaugsdóttir – Hörður

Axel Geirsson og Losti frá Norður-Hvammi – Andvari

Camilla Petra Sigurðardóttir og Vera frá Þóroddsstöðum – Máni

Teitur Árnason og Korði frá Kanastöðum – Fákur

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link