Síðasta mót Bikarkeppninnar á föstudag

  • 7. mars 2011
  • Fréttir
Síðasta mót Bikarkeppninnar á föstudag

Síðasta mót í Bikarkeppni hestamannafélaganna á Höfuðborgarsvæðinu fer fram föstudaginn 11. mars kl. 20 í reiðhöllinni í Víðidal.

Keppt verður er í smala ásamt brokki og skeiði á tíma í gegnum höllina en hvert hestamannafélag sendir tvo keppendur í smalann, einn í brokk og einn í skeið.

Bikarkeppni hestamannafélaga á höfuðborgarsvæðinu er mótaröð þar sem hestamannafélögin Andvari, Fákur, Gustur, Hörður, Máni, Sóti og Sörli keppa sín á milli og safna stigum fyrir félögin.

Mótin eru stutt og er lögð rík áhersla á að þau séu áhorfendavæn og að mikilvægt sé að ná upp stemningu á áhorfendapöllunum.  

Á hverju móti verður öflugasta stuðningsliðið valið og fær það stuðningsmannalið, sem stendur sig best á öllum keppnunum þremur, bikar á lokamótinu eins og það hestamannafélag sem sigrar keppnina.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link