Landsmót 2026 Síðasti dagur afsláttar á Landsmótsmiðum

  • 30. apríl 2026
  • Fréttir
Metfjöldi miða seldur í forsölu

Landsmót fer fram 5.–11. júlí að Hólum í Hjaltadal, þar sem bestu hestar og knapar landsins koma saman í heila viku af keppni og stemningu.

Samkvæmt forsvarsmönnum Landsmóts hefur áhugi á Landsmóti 2026 farið fram úr væntingum. „Metfjöldi miða hefur þegar selst í forsölu. Aldrei áður hafa jafnmargir tryggt sér miða svo snemma, sem staðfestir stöðu viðburðarins sem einn af hápunktum íslensks sumars.“

Í dag, 30. apríl, er síðasti dagurinn til að nýta forsöluaflsátt af miðum en eftir þann dag hækkar miðaverðið. Einnig vilja forsvarsmenn mótsins hvetja gesti til að tryggja sér tjaldstæði sem fyrst en mikil sala hefur verið í stæðum með rafmagnstenglum.

„Gestir geta hlakkað til glæsilegra atriða í brautinni yfir daginn, en á kvöldin verður boðið upp á metnaðarfulla og fjölbreytta tónlistardagskrá.  Hátíðarhöldunum lýkur þó ekki þegar Landsmóti lýkur. 12. júlí verður haldinn sérstakur Dagur menningar og ræktunar í Skagafirði, þar sem mörg þekkt hrossaræktarbú á svæðinu opna dyr sínar fyrir gestum. Þar gefst einstakt tækifæri til að kynnast íslenskri hrossarækt af eigin raun, hitta ræktendur og sjá framúrskarandi hesta í sínu rétta umhverfi. Með þessari miklu aðsókn og glæsilegri dagskrá, stefnir allt í að Landsmót 2026 verði ógleymanleg upplifun fyrir alla hestamenn og gesti.“

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link