Hestamannafélagið Jökull Síðasti skráningardagur á Opið gæðingamót Jökuls á Flúðum

  • 22. júlí 2024
  • Tilkynning
150.000 kr. verðlaun í öllum fullorðinsflokkum og vegleg verðlaun í yngri flokkum.

Skráningu lýkur í dagá opna gæðingamót Jökuls á Flúðum dagana 25. – 28. júlí.

„Veðurspáin lítur vel út og er verður þetta mjög skemmtilegt mót. Mörg fyrirtæki eru að styrkja mótið og eru 150.000 fyrir fyrsta sæti í öllum fullorðinsflokkunum og í yngri flokkunum eru einnig vegleg verðlaun í formi gjafabréfa og annarra vininga. Fjölmennum á eitt skemmtilegasta gæðingamót ársins. Við lofum frábærum hestum og skemmtilegu fólki.“ segir í tilkynningu frá hestamannafélaginu Jökli.

Skráning fer fram á www.sportfengur.com. Skráningargjald: í eldri flokka og skeið er 7.000 kr og í yngri flokka 5.000 kr. Mikilvægt er að senda staðfestingu á greiðslu á netfangið jokull@hmfjokull.is til að skráning teljist gild.

Flokkar í boði:
A- flokkur
A-flokkur áhugamanna
A- flokkur ungmenni
B-flokkur
B- flokkur áhugamanna
B- flokkur ungmenna
unglingaflokkur
barnaflokkur
tölt T3 – 18 ára og eldri
tölt T3 – 17 ára og yngri, tölt
T7 – börn
T7 – fullorðna
100m skeið
Pollaflokkur

Þau fyrirtæki sem styrkja fullorðinsflokkana eru:
Fossvélar
Minni-Borgir veitingar
Helgastaðir
Ásaraf
Fjallaraf
Bjarnabúð
Garðyrkjustöðin Reykás ehf
Geysir ehf
Flúðasveppir
Suðurtak

Drög af dagskrá:
Fimmtudagur.
Allar töltgreinar

Föstudagur
Ungmennaflokkur
Barnaflokkur
B flokkur opinn og áhugamanna

Laugardagur
A flokkur opinn og áhugamanna
A flokkur Ungmenni
Unglingaflokkur
Úrslit í tölti
100m skeið

Sunnudagur
Úrslit og pollaflokkur

Endanleg dagskrá liggur fyrir eftir að skráningu lýkur og röðun flokkana hvern dag hér að ofan er ekki endilega í þeirri röð sem hún mun vera á mótinu.

Nánari upplýsingar um mótið má fá með að senda póst á jokull@hmfjokull.is

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar