Síðasti skráningardagur
Við minnum á að skráningafrestur á Íslandsmót í hestaíþróttum rennur út á miðnætti mánudaginn 24.júní. Skráning fer fram á www.sportfengur.com. Mótið hefst þriðjudaginn 2.júlí.
Eftirfarandi greinar eru í boði:
Meistaraflokkur: fjórgangur V1, fimmgangur F1, tölt T1, tölt T2, gæðingaskeið PP1, 250m skeið P1, 150m skeið P3 og 100m flugskeið P2
Ungmennaflokkur: fjórgangur V1, fimmgangur F1, tölt T1, tölt T2, gæðingaskeið PP1, 100m flugskeið P2 og fimikeppni A2
Unglingaflokkur: fjórgangur V1, fimmgangur F2, tölt T1, tölt T4, gæðingaskeið PP1, 100m flugskeið P2 og fimikeppni A
Barnaflokkur: fjórgangur V2, tölt T3, tölt T4 og fimikeppni A
Skráningargjald er:
– 5500 kr. fyrir barna- og unglingaflokk
– 6500 kr. fyrir ungmennaflokk
– 7900kr. fyrir fullorðinsflokk
– 5500 kr. fyrir skeiðgreinar
Vakin er athygli á því að í fullorðinsflokki eru einkunnalágmörk í allar greinar. Það er parið, hesturinn og knapinn, sem þurfa að ná lágmörkum. Nánari upplýsingar hér: https://www.lhhestar.is/is/frettir/lagmork-a-islandsmot-2019
Nánari upplýsingar um mótið gefa:
Einar Gíslason, framkvæmdastjóri – [email protected]
Þórdís Anna Gylfadóttir, mótstjóri – [email protected]
Styttu haustið með EiðfaxaTV