Síðsumarsýning á Gaddstaðaflötum
Í dag er síðasti dagurinn á síðsumarssýningunni á Gaddstaðaflötum. Snæsól frá Austurkoti er efst en hún hefur hlotið 8,27 í aðaleinkunn þar af 8,46 fyrir hæfileika og 7,98 í sköpulag. Snæsól var sýnd af Páli Braga Hólmarssyni en hann hefur keppt mikið á Snæsól undanfarin ár með góðu gengi. Snæsól er undan Kjarna frá Þjóðólfshaga 1 (8,30) og Snæfríði frá Þóreyjarnúpi (7,82)
Önnur er Hekla frá Hólshúsum með 8,19 í aðaleinkunn þar af 8,15 fyrir hæfileika og 8,24 fyrir sköpulag. Sýnandi var Daníel Jónsson. Hekla er undan Andvara frá Ey I (8,36) og Sabínu frá Grund (8,06)
Meðfylgjandi er dómur Snæsólar og Heklu:
IS2004282657 Snæsól frá Austurkoti
Litur: 0402 Grár/leirljós einlitt vindhært (grásprengt) í fax eða tagl
Sköpulag: 7,5 – 8,5 – 7,5 – 7,5 – 8,5 – 7,5 – 8,0 – 7,5 = 7,98
Hæfileikar: 8,5 – 8,5 – 8,5 – 8,0 – 8,5 – 8,5 – 8,5 = 8,46
Aðaleinkunn: 8,27 Hægt tölt: 8,5 Hægt stökk: 7,5
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH