Landsamband hestamanna „Sigur í barnaflokki var ógleymanleg stund fyrir mig“

  • 4. apríl 2026
  • Fréttir

Kristján Árni prúðbúinn í keppnisjakka Hestamannafélagsins Léttis með Sjéns sér við hlið og bikarinn að loknum sigri í Barnaflokki á Landsmóti 2016. Ljósmynd: Eiðfaxi

Kristján Árni Birgisson var sigurvegari í barnaflokki á Landsmóti 2016

Tíminn flýgur! Í sumar snýr Landsmót hestamanna aftur heim að Hólum í Hjaltadal. Mörg okkar muna stemninguna árið 2016 eins og hún hefði átt sér stað í gær. Við skulum rifja upp helstu augnablikin frá því fyrir tíu árum og hita upp fyrir sumarið, við byrjum á keppni í barnaflokki.

Eyfirskur sigur í barnaflokki

Sigurvegari í barnaflokki árið 2016 var ungur Eyfirðingur, Kristján Árni Birgisson, þá tólf ára að aldri. Hann keppti á Sjéns frá Bringu (f. 2008), glæsilegum átta vetra gæðingi undan Rökkva frá Hárlaugsstöðum og Dís frá Hraunbæ.

Leið þeirra að sigrinum var spennandi. Eftir sérstaka forkeppni leiddu þeir með einkunnina 8,88, en eftir smá bakslag í milliriðlum þar sem þeir höfnuðu í 5. sæti (8,58) mættu þeir vel stemmdir í úrslitin. Þar sýndu þeir þó nokkra yfirburði og tryggðu sér gullið með einkunninni 8,95. Í öðru sæti varð Signý Sól Snorradóttir á Rafni frá Melabergi með 8,79 í einkunn og í því þriðja Júlía Kristín Pálsdóttir á Kjarval frá Blönduósi með 8,77 í einkunn.

 

Kristján Árni og Sjéns ríða sigurhringinn. Ljósmynd: Eiðfaxi

„Ekki týpískur barnahestur“

Við heyrðum í Kristjáni Árna og fengum hann til að rifja upp stemninguna í Hjaltadal fyrir áratug.

„Þegar ég hugsa til baka þá stendur sigurinn á Sjéns vissulega upp úr á þessu móti, ógleymanleg stund fyrir mig. Stemningin var frábær allt mótið enda alltaf gaman og gott að vera í Hjaltadal,“ segir Kristján.

Aðspurður um hvernig hestur Sjéns hafi verið, segir Kristján að hesturinn hafi verið allt annað en venjulegur. „Sjéns var einstakur, stór karakter, mikill mannþekkjari og ekki þessi týpíski barnahestur. Hann bjó yfir frábærum gangtegundum með mikið rými og fas. Hann hlustaði vel á knapann og ég held að það hafi verið gagnkvæm virðing sem gerði okkur góða saman.“ 

Verðlaunaafhending í barnaflokki á Landsmóti 2016. Lárus Ástmar Hannesson, þáverandi formaður LH stendur við hlið Kristjáns Árna. Í öðru sæti er Signý Sól Snorradóttir og í því þriðja Júlía Kristín Pálsdóttir. Ljósmynd: Eiðfaxi

Snýr aftur á Hóla í fullorðinsflokki

Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan árið 2016 og Kristján er í dag einn af okkar allra efnilegustu knöpum, en keppir nú í ár í fyrsta sinn í fullorðinsflokki. Hann hefur landað mörgum titlum og varð til að mynda tvöfaldur heimsmeistari á síðasta ári í 250 – og 100 metra skeiði ungmenna á Kröflu frá Syðri-Rauðalæk.

„Ég er með nokkur ný og spennandi hross sem ég hlakka til að koma fram með í keppni sem og á kynbótabrautina á þessu ári“ segir Kristján og nefnir sérstaklega tvö hross þau Súlu frá Kanastöðum og Vísi frá Ytra-Hóli. „Þá er aldrei að vita nema maður sé með eitthvað af fleiri skeiðhrossum sem geta farið nokkuð hratt.“ Það verður gaman að fylgjast með Kristjáni Árna á komandi Landsmóti og aldrei að vita nema hann geti blandað sér í toppbaráttu í einhverjum af þeim fjölmörgu greinum sem keppt er í.

Við skulum rifja augnablikið upp og heyra viðtal við Kristján Árna sem úr umfjöllunarþætti um Landsmót 2016 sem sýndur var á RÚV og er einnig að finna í Gullkistunni á EiðfaxaTV.

 

Sigurvegarar í Barnaflokki á Landsmóti

2024 Viktoría Huld Hannesdóttir, Þinur frá Enni,  Geysir 9,25

2022 Kristín Eir Hauksdóttir Holaker, Þytur frá Skáney, Borgfirðingur, 9,01

2018 Guðný Dís Jónsdóttir, Roði frá Margrétarhofi Sprettur 8,88

2016 Kristján Árni Birgisson, Sjéns frá Bringu, Léttir 8,95

2014 Glódís Rún Sigurðardóttir, Kamban frá Húsavík, Ljúfur 9,16

2012 Glódís Rún Sigurðardóttir, Kamban frá Húsavík, Ljúfur 9,02

2011 Glódís Rún Sigurðardóttir, Kamban frá Húsavík, Ljúfur 8,83

2008 Birna Ósk Ólafsdóttir, Smyrill frá Stokkhólma, Andvari 8,81

2006 Ragnar Bragi Sveinsson, Hávarður frá Búðarhóli, Fákur 8,74

2004 Rakel Nathalie Kristinsdóttir, Vígar frá Skarði, Geysir 8,71

2002 Hekla K. Kristinsdóttir, Tara frá Lækjarbotnum, Geysir 8,75

2000 Camilla Petra Sigurðardóttir, Fróði frá Miðsitju 8,88

1998 Elva B. Margeirsdóttir, Svartur frá Sólheimatungu, Máni 8,66

1994 Davíð Matthíasson, Vinur frá Svanavatni, Fákur 8,45

1990 Steinar Sigurbjörnsson, Glæsir frá Reykjavík, Fákur 8,95

1986 Edda Rún Ragnarsdóttir, Silfri frá Sólheimum, Fákur 8,44

1982 Annie B. Sigfúsdóttir, Blakkur frá Vestra-Geldingaholti, 8,70

1978 Ester Harðardóttir, Blesi frá Breiðabólstað 8,20

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link