Sigurður Matthíasson leiðir eftir forkeppni – video
Reykjavíkurmót Fáks hófst í morgun með forkeppni í fimmgangi meistaraflokki.
Sigurður Vignir Matthíasson stendur efstur á Mætti frá Leirubakka en á hæla hans koma Sólon Morteins á Fræg frá Flekkudal og Viðar Ingólfsson á Má frá Feti. Má því búast við spennandi úrslitum í fimmgangi meistaraflokki á sunnudaginn.
Eftir hádegi halda leikar áfram í fimmgangi og svo er hefst fjórgangur unglinga kl. 17 og fjórgangur ungmenna kl. 19:40.
Allir að mæta í dalinn og sjá flotta hesta og glæsta gæðinga.
Meðfylgjandi er myndbrot af Sigurði og Mætti í forkeppninni.
Úrslit forkeppni Meistaraflokks urðu eftirfarandi:
1. Sigurður Vignir Matthíasson / Máttur frá Leirubakka 7,43
2. Sólon Morthens / Frægur frá Flekkudal 7,10
3. Viðar Ingólfsson / Már frá Feti 7,00
4. Haukur Baldvinsson / Falur frá Þingeyrum 6,93
5. Eyjólfur Þorsteinsson / Ögri frá Baldurshaga 6,87
6. Edda Rún Ragnarsdóttir / Hreimur frá Fornusöndum 6,83
7. Jakob Svavar Sigurðsson / Alur frá Lundum II 6,70
8. Pim Van Der Slot / Draumur frá Kóngsbakka 6,53
9. Ragnheiður Þorvaldsdóttir / Hrafnagaldur frá Hvítárholti 6,30
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH